Lífið

Hilton skammar The View

Hilton er ósátt við stjórnendur The View og segir þá ekki hafa kynnt sér nýjasta þáttinn hennar.
Hilton er ósátt við stjórnendur The View og segir þá ekki hafa kynnt sér nýjasta þáttinn hennar.
Paris Hilton hefur skammað stjórnendur umræðuþáttarins The View fyrir að vera illa undirbúnir. Hilton mætti í þáttinn nýverið til að kynna nýjasta raunveruleikaþáttinn sinn, The World According to Paris, og er óhætt að fullyrða að hún hafi fengið óblíðar viðtökur.

Whoopi Goldberg sagði þáttinn vera yfirborðskenndan og hin goðsagnakennda Barbara Walters hellti sér yfir Hilton fyrir að fara niðrandi orðum um þá samfélagsþjónustu sem hún þurfti að sinna árið 2010.

Bandarískir fjölmiðlar gerðu því síðan skóna að Hilton hefði nánast fengið taugaáfall eftir þáttinn og hefði ausið úr skálum reiði sinnar yfir framleiðendurna. Hún vísar því hins vegar á bug í samtali við E!. „Ég hef þekkt Walters í mörg ár og ég virði hana sem blaðakonu.

Hún verður auðvitað að spyrja sinna spurninga en hún hefði átt að horfa á þáttinn. Þær höfðu bara séð eina klippu, þar sem ég kvarta vissulega yfir samfélagsþjónustunni. En ég var líka bara að segja sannleikann. Það var hins vegar engin uppákoma eftir þáttinn, þær fréttir eru algjörlega úr lausu lofti gripnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.