Einstaka karlmenn sem þora á tónleikana okkar 10. júní 2011 12:00 Þeir Jógvan og Friðrik Ómar ætla að spila á 25 stöðum um allt land í sumar, en fyrstu tónleikarnir fóru fram í Akraneskirkju á miðvikudagskvöldið. Í kvöld spila þeir í Selfosskirkju og hefjast tónleikarnir kl. 20. Fréttablaðið/GVA
Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða á ferð og flugi um landið í sumar. Þeir ætla að fylgja eftir plötunni Vinalög sem kom út árið 2009 en lofa að taka Eurovision-lögin líka. „Við verðum bara tveir á rúntinum,“ segir söngvarinn Jógvan Hansen, en þeir Friðrik Ómar ferðast um landið í sumar að fylgja eftir plötunni Vinalög. „Vinalög var metsöluplata árið 2009 og við erum að fylgja henni eftir, núna einu og hálfu ári síðar,“ segir Friðrik Ómar. Friðrik og Jógvan héldu fyrstu tónleikana í Akraneskirkju á miðvikudagskvöldið og heppnuðust þeir vel. „Það er svo gaman hvað við erum með skýran markhóp. 95 prósent gesta eru konur en svo eru einstaka hugrakkir karlmenn sem mæta,“ segir Friðrik, og bætir við að þeir félagarnir ætli sér að taka nokkur Eurovision-lög inn á milli. „Ég tek This Is My Life og Jógvan tekur eitthvað af lögunum sem hann hefur sungið í undankeppnunum hér heima. Hann dreymir náttúrulega um að vinna þessa keppni, hefur tekið þátt þrisvar en aldrei unnið,“ segir Friðrik Ómar í léttum dúr. Ferðalagið verður ansi mikið en allt í allt verða tónleikastaðirnir 25 um allt land. „Við ferðumst aðallega með bílaleigubíl en Flugfélag Íslands ætlar líka að gera vel við okkur og við fáum að fljúga svolítið.“ Spurðir að því hvor þeirra ætli að sjá um aksturinn, segir Jógvan að þeir muni skiptast á en telur þó að það muni á endanum koma í hans hlut að sitja við stýrið. „Hann kann ekkert að keyra hann Friðrik. Annars hef ég nú alveg gaman að því að keyra bíl, svo þetta verður bara fjör.“kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Sjá meira