Lífið

Ég hefði átt að deyja 100 sinnum

Líf Ozzy Osbourne hefur verið afar skrautlegt, eins og kemur fram í nýrri heimildarmynd um kappann.
Líf Ozzy Osbourne hefur verið afar skrautlegt, eins og kemur fram í nýrri heimildarmynd um kappann.
Ný heimildarmynd um myrkraprinsinn Ozzy Osbourne verður frumsýnd á næstunni. Myndin heitir God Bless Ozzy Osbourne, eða Drottinn blessi Ozzy Osbourne, og er framleidd af Jack, syni hans, og eiginkonunni Sharon.

Myndin var forsýnd í Bretlandi í vikunni, en í henni er líf Osbourne skoðað í víðu samhengi. Fjallað er um uppvöxt hans í Birmingham ásamt foreldrum, systrum, fyrstu eiginkonunni og börnum. Þá er fjallað um árin í hljómsveitinni Black Sabbath og sólóferilinn.

Osbourne talar um eiturlyfja- og áfengisvandamál sín í myndinni og nefnir sérstaklega þegar hann vaknaði á miðri hraðbraut eftir annasamt kvöld. „Ég hefði átt að deyja 100 sinnum en það gerðist ekki,“ segir hann. „Ef einhver vildi að ég gerði eitthvað var nóg að biðja mig um að gera það ekki. Ég man ekki eftir níunda áratugnum. Það er eins og hann hafi ekki átt sér stað!“

Í myndinni talar hinn sextugi Ozzy Osbourne einnig um ökuskírteinið sem hann fékk nýlega. „Þegar allt fór að ganga vel keypti ég byssur, hnífa og mótorhjól. En það er bara í dag sem ég get keyrt bíl!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.