Jóhannes Haukur: Ég tók alltaf Hotel California á Ara í Ögri 9. júní 2011 08:00 Jóhannes Haukur skipuleggur partí eftir tónleikana í kvöld.
Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikarinn góðkunni, er maðurinn á bak við eftirpartí Eagles-tónleikanna í kvöld. Hann er búinn að fá veitinga- og skemmtistaðinn Austur undir herlegheitin, þar sem Ásgeir Kolbeinsson ræður ríkjum. „Það er búið að hafa samband við mig, ég get staðfest það," segir Ásgeir í samtali við Fréttablaðið. Ásgeir vildi að öðru leyti lítið tjá sig um eftirpartíið, honum hefði verið gert ljóst að vera ekki með neitt gutl á boðstólum heldur bjóða aðeins upp á það besta, Johnny Walker Blue Label viskí, flott kampavín og gott gin. Þá á grillið að vera opið ef menn skyldu vilja fá sér eitthvað að borða. Þeir Jóhannes Haukur og Ásgeir hafa hist nokkrum sinnum í ræktinni að undanförnu og rætt málin en flestum ætti að vera kunnugt um það gríðarlega líkamsræktarátak sem Jóhannes lagði á sig fyrir leik sinn í kvikmyndinni Svartur á leik. Um líkamlegt atgervi Ásgeirs ætti ekki að þurfa hafa mörg orð, hann hefur verið fastagestur í World Class undanfarin ár. Þótt Jóhannes sé eftirsóttur leikari hefur hann af og til aðstoðað góðvin sinn Ísleif B. Þórhallsson, skipuleggjanda Eagles-tónleikanna. Þeir kynntust þegar Ísleifur framleiddi Hellisbúann í Íslensku óperunni fyrir nokkrum árum. Jóhannes er titlaður „verkefnisstjóri" í störfum sínum hjá Senu. Í kvöld verður stóra stundin á þeim vettvangi þegar Eagles kemur fram í Laugardalshöllinni. „Þetta liggur mjög vel fyrir mér því ég er mjög skipulagður maður að eðlisfari," segir Jóhannes, sem hafði enn ekki fengið að hitta stjörnurnar Don Henley eða Glenn Frey. Hann hafði hins vegar hitt bassaleikarann Timmy Smith en átti von á því að hitta Frey og Henley á hljóðprufu í gærkvöldi. „Við verðum þarna að tína stilka af jarðarberjum og svona." Þetta eru síður en svo fyrstu kynni Jóhannesar af Eagles, því áður en hann sló í gegn sem leikari var hann trúbador á kránni Ara í Ögri, þar sem Hotel California var yfirleitt á lagalista kvöldsins. Jóhannes er sem sagt grjótharður Eagles-aðdáandi. „Ég tók alltaf sólóið. Ég vona bara að ég fari ekki að tala um það við Don Henley eftir tónleikana, vel í glasi. Það væri mjög vandræðalegt."freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Fleiri fréttir Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Sjá meira