Lífið

Bera hag Íslands fyrir brjósti

Engar áhyggjur 
Lára Rúnarsdóttir og President Bongo þurfa engar áhyggjur að hafa þótt Inspired by Iceland komi ekki nálægt tónleikunum í Búlgaríu; tónleikahaldarinn Vasilev ábyrgist að tónleikarnir verði með glæsilegasta móti.
Engar áhyggjur Lára Rúnarsdóttir og President Bongo þurfa engar áhyggjur að hafa þótt Inspired by Iceland komi ekki nálægt tónleikunum í Búlgaríu; tónleikahaldarinn Vasilev ábyrgist að tónleikarnir verði með glæsilegasta móti.
Núningurinn milli búlgarska tónleikahaldarans og Íslandsstofu virðist til lykta leiddur. Tónleikahaldarinn lofar góðu stuði og segist aðeins hafa ætlað að kynna Ísland og íslenska menningu.

„Þetta er bara einhver leiður misskilningur og ég er búinn að ræða við þau hjá Íslandsstofu og útskýra fyrir þeim hvernig í málinu liggur," segir Simeon Vasilev, ritstjóri DJ MAG Bulgaria og forsprakki 17. júní-tónleika á offiseraklúbbnum í miðborg höfuðborgarinnar Sofiu.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stendur til að halda þjóðhátíðardag Íslendinga hátíðlegan í Búlgaríu með tónleikahaldi, sem er allt gott og blessað nema að í búlgörskum fjölmiðlum var því haldið fram að landkynningarverkefnið Inspired by Iceland kæmi að þessum tónleikum, sem skarta meðal annars Láru Rúnarsdóttur og plötusnúðnum President Bongo. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður markaðssóknar hjá Íslandsstofu, vísaði því hins vegar á bug að Inspired by Iceland kæmi nokkuð nálægt þessu og bætti því við að vörumerkið hefði aldrei verið notað án vitundar Íslandsstofu áður og að málið yrði skoðað í framhaldinu. Fréttablaðinu barst í gær yfirlýsing frá Ingu Hlín þar sem kemur fram að hvorki Inspired by Iceland né Íslandsstofa setji fjármagn í viðkomandi viðburð. „Við höfum kannað málið og allt var þetta með góðum vilja viðkomandi tónleikahaldara að hafa merki Inspired by Iceland í auglýsingu viðburðarins.

Við gerum ekki athugasemdir við þetta og vonum að tónleikarnir takist sem allra best í landkynningarskyni og fyrir þær íslensku hljómsveitir sem taka þátt."

Vasilev segir að Inspired by Iceland hafi aldrei komið neitt nálægt þessu, það sé íslenski konsúllinn í Búlgaríu sem standi við bakið á tónleikahöldurum og greiði fyrir tónleikana úr eigin vasa. Sjálfur hafi hann mikla reynslu af tónleikahaldi og hann tekur skýrt fram að þjóðhátíðardansleikurinn verði með glæsilegasta móti; öllu verði kostað til. „Við viljum ekki vera með nein leiðindi heldur ætlum bara að kynna Ísland og íslenska menningu. Við berum hag Íslands fyrir brjósti."

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.