Lífið

Erpur til Danmerkur að hvetja landsliðið

Hvetur landsliðið til dáða Erpur Eyvindarson er á leiðinni til Danmerkur ásamt fríðu föruneyti. Hann kemur meðal annars fram í Árósum eftir leik Íslands og Hvíta-Rússlands á Evrópumóti landsliða undir 21.
Hvetur landsliðið til dáða Erpur Eyvindarson er á leiðinni til Danmerkur ásamt fríðu föruneyti. Hann kemur meðal annars fram í Árósum eftir leik Íslands og Hvíta-Rússlands á Evrópumóti landsliða undir 21.
„Þetta eru gæjarnir sem ég hitti á tónleikum og eru með á nótunum,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson um U21 landslið Íslands í fótbolta.

Erpur er á leiðinni til Danmerkur ásamt félögum sínum Lúlla og Þorsteini í XXX Rottweiler. Rappararnir 7Berg og U-Manden taka á móti þeim í Danmörku og hópurinn kemur fram á Blasen í Kaupmannahöfn á morgun. Daginn eftir halda þeir svo til Árósa, þar sem þeir koma fram á V58 eftir leik Íslands og Rússlands á Evrópumóti U21 landsliða. „Þar verður haldið áfram að peppa hið eiginlega landslið, sem hegðar sér eins og landslið,“ segir Erpur.

Erpur er spenntur fyrir ferðinni og fullyrðir að strákarnir í U21-landsliðinu séu kynslóðin hans. „Þetta eru ekki gæjarnir sem voru að hlusta á Stjórnina í leikhléum, það hefur haft sín áhrif,“ segir hann. „Þess vegna verða þessir gæjar í íþróttahreyfingunni að passa sig á því að vera ekki að ota einhverri pulsumúsík að íþróttamönnum. Gæjarnir sem eru að gera eitthvað af viti eru þeir sem eru að hlusta á rappið — Blaz Roca og Rottweiler.“

Er þetta kynslóðin sem var óttast um þegar Rottweiler kom fram á sjónarsviðið upp úr aldamótum?

„Já, nefnilega. Þetta eru þvílíkir fagmenn, gull af mönnum og þeir eru mjög reglusamir og agaðir, en hlusta á góða músík. Punkturinn er að það er alltaf verið að ota mannaskít í nótnaformi að íþróttahreyfingunni. Tónlistin mín er engin jafnteflistónlist.“

Og telurðu að þú getir orðið að liði?

„Ekki spurning. Þessir gæjar eru að gera okkur geðveikt stolt. Ég vil peppa þá til baka, þakka fyrir mig.“- afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.