Missir af 17. júní gleðinni í Sofíu 7. júní 2011 09:00 Leiðinlegt Frægasta dóttir Íslands í Sófíu, Ásdís Rán, nær ekki að halda upp á þjóðhátíðardaginn með Láru Rúnarsdóttur og President Bongo. Hún verður þá að keyra með manni sínum og börnum frá München í áttina að höfuðborginni. „
En leiðinlegt að maður skuli missa af þessu," segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, frægasta dóttir Íslands í höfuðborg Búlgaríu, Sófíu. Íslandsverkefnið Inspired by Iceland stendur fyrir mikilli þjóðhátíðargleði á offiseraklúbbi í miðborg Sofíu hinn 17. júní næstkomandi. Söngkonan Lára Rúnarsdóttir og plötusnúðurinn President Bongo munu skemmta gestum og gangandi. Hins vegar verður frægasti Íslendingur borgarinnar víðsfjarri. „Við verðum hér á Íslandi til 16. júní og fljúgum þá til München og keyrum þaðan til Sófíu," segir Ásdís, en hún var að eigin sögn að gæða sér á íslenskum mat á Sólon í miðbæ Reykjavíkur þegar Fréttablaðið náði tali af henni. „Við erum eiginlega heimilislaus þar til Garðar er kominn með nýjan samning þannig að ég ákvað að leigja íbúð í miðbæ Sófíu. Hún er á besta stað með sundlaug og öllu," segir Ásdís, en hún hyggst jafnframt nýta dvölina til að koma fatalínu sinni á framfæri við Búlgara. „Ég er í samstarfi við þrjár verksmiðjur í Sófíu og er bara að vinna með þeim." Ásdís kann vel við sig í Sófíu, segist njóta heitu sumarkvöldanna í Búlgaríu. Og eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá kemur út á fimmtudaginn þýskt Playboy þar sem fyrirsætan íslenska prýðir fjórar opnur, heilar átta blaðsíður. „Þetta er sami myndaþátturinn og birtist í búlgarska Playboy, þeir keyptu bara myndir úr honum."- fgg
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira