Lér konungur fékk flestar tilnefningar 7. júní 2011 04:00 x
Sýningin Lér konungur hlýtur flestar tilnefningar til Grímuverðlaunanna í ár. Tilkynnt var um tilnefningarnar í gær, en verðlaun eru veitt í sextán flokkum. Sýningin Lér konungur sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu síðasta vetur hlaut tíu tilnefningar til Grímunnar; hún var tilnefnd sem besta sýningin, leikstjórinn hlaut tilnefningu og fjórir leikarar voru tilnefndir auk þess sem tónlistin, leikmynd, búningar og lýsing hlutu öll náð fyrir augum dómnefndar Grímunnar. Fólkið í kjallaranum sem sýnt var í Borgarleikhúsinu hlaut sjö tilnefningar. Aðrar sýningar sem eru áberandi fyrirferðarmiklar á lista dómnefndar eru Elsku barn og Allir synir mínir. Bestu sýningar leikársins þykja Allir synir mínir, Elsku barn, Fjalla-Eyvindur, Fólkið í kjallaranum og Lér konungur. Bestu leikstjórarnir eru leikstjórar þessara verka fyrir utan að Marta Nordal, leikstjóri Fjalla-Eyvinds, er ekki tilnefnd en Jón Páll Eyjólfsson, leikstjóri Strýhærða Péturs, hlýtur náð fyrir augum dómnefndar. Elísabet Brekkan, leikhúsgagnrýnandi Fréttablaðsins, var nokkuð ánægð með tilnefningar til bestu sýninga. „Það skal engan undra þótt Allir synir mínir sé tilnefnt því það er svo mikil unun að fá að heyra góðan texta og leikara sem fara vel með hann. Sýning Leikfélags Reykjavíkur, Elsku barn, var áhrifamikil sýning þar sem leikarar og allir sem að henni komu unnu af alúð á framsetningu á mjög erfiðu máli. Leikgerð Ólafs Egils Egilssonar á Fólkinu hennar Auðar Jónsdóttur í kjallaranum var vel leikin og sýningin gekk vel upp, var í senn gróf og fyndin. Sjónarspilið um Lé konung og öll hans svik í 32 mínútna rigningu á stóra sviði Þjóðleikhússins fær hér tilnefningu af mörgum ástæðum og Arnar Jónsson átti hér vitaskuld stjörnuleik, reyndar ásamt fleirum. Fjalla-Eyvindur í leikstjórn Mörtu Nordal var einstök sýning. Líklega hafa allt of fáir séð hana, enda aðeins sýnd í örfá skipti úti á Norðurpól,“ segir Elísabet. Grímuverðlaunin verða afhent 16. júní.
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira