Lífið

Tónlistarrásin tekin í gegn

Íslenskar tónlistarfréttir eru í forgrunni í Molum, nýjum fréttaþætti Ómars Eyþórssonar á NovaTV.
Íslenskar tónlistarfréttir eru í forgrunni í Molum, nýjum fréttaþætti Ómars Eyþórssonar á NovaTV. fréttablaðið/valli
„Það er hægt að gera svo margt skemmtilegt, mér finnst það vanta,“ segir Ómar Eyþórsson, útvarpsmaður í morgunþættinum Ómar á Xinu og tónlistarstjóri sjónvarpsstöðvarinnar NovaTV.

Fréttaþátturinn Molar hóf nýlega göngu sína á NovaTV. Tónleikaábendingar og aðrar tónlistartengdar fréttir eru uppistaða þáttarins, sem er sýndur nokkrum sinnum í dag. Sérstök áhersla er lögð á íslensk tónlistarmyndbönd og fréttir af íslenskum hljómsveitum. „Það er náttúrlega nóg að gera í þessum bransa,“ segir Ómar og bætir við að þátturinn sé aðeins byrjunin. „Megnið af svona efni er komið á netið en þarna er heil sjónvarpsstöð í opinni dagskrá. Ég tók við um áramótin að setja inn myndbönd – það er búið að taka það allt í gegn.“

Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að tónlistarþáttur væri væntanlegur á RÚV. Ómar fagnar allri umfjöllun um íslenska tónlist en tekur þó fréttunum með fyrirvara. „Ég held að það sé hætta á því að menningarvitarnir gleypi þáttinn,“ segir hann.

Ómar segir að fleiri þættir séu væntanlegir með haustinu. Þá verður útvarpsmaðurinn Brynjar Már með íslenska listann á sjónvarpsstöðinni ásamt því að vinsældalisti Xins verður einnig væntanlega á dagskrá. „Þegar fer að róast hjá mér í afleysingum fer ég á fullt með alls konar pælingar þarna inn,“ segir Ómar.- afb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.