Segir mittið ekki minnkað með myndvinnslubrögðum 2. júní 2011 12:00 Forsíðumynd símaskrárinnar er til vinstri og skjáskot af auglýsingu frá símaskránni er til hægri. Egill segir þjöppun á þeirri síðarnefndu hafa orðið til þess að hann virðist breiðari en hann sé í raun og veru. „
Það eru jafn miklar líkur á því að Þykki sé fótósjoppaður á símaskránni og að Stallone hafi verið fótósjoppaður framan á plakatinu fyrir Rambo 3," segir þúsundþjalasmiðurinn Egill Einarsson. Vefsíðan Flickmylife.com birti á dögunum myndir sem sýndu muninn á Agli framan á símaskránni annars vegar og í kynningarmyndbandi fyrir sömu bók hins vegar. Stór munur er á myndunum, en færslan er birt undir fyrirsögninni Photoshop dagsins. Þar með eru líkur leiddar að því að myndvinnsluforrit hafi ekki aðeins verið notað til að vinna myndina, eins og gert er við allar prentaðar myndir, heldur einnig til að minnka mitti Egils og skerpa á vöðvabyggingunni. Hann vísar meintum myndvinnslutöfrabrögðum á bug og segir auðvelt að svara færslunni á Flickmylife. „Þar er notað skjáskot úr myndbandi til að bera saman við myndina á forsíðu símaskrárinnar," segir hann. „Myndbandið var tekið í 4:3 sniði og síðan þrýst niður í 16:9 snið við útsendingu. Stóri G-maðurinn þjappaðist þar af leiðandi við það og virkar breiðari." Egill segir myndvinnsluforritið Photoshop aðeins hafa verið notað til að litaleiðrétta myndina ásamt því að skerpa liti og annað. „Ég er 95 kíló á myndinni og 3,6 prósent fita. Daginn sem ég ranka við mér teiknandi á mig kviðvöðva hengi ég mig," segir Egill. „Eina liðið sem hefur haldið því fram að Þykki sé fótósjoppaður er rækjusamlokurnar sem eru með allt niður um sig í ræktinni. Það hefur ekki einn maður í góðu formi haldið þessu fram. Tók lunch með Grantaranum [Arnari Grant] í gær, hann minntist ekki einu orði á þetta." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Sjá meira