Laddi fær ekki að tala fyrir strumpana 31. maí 2011 08:00 Laddi fær ekkert að strumpast með Strumpunum í nýrri strumpamynd. Hann fær hins vegar að tala fyrir Kjartan galdrakarl í talsetningu Sigurðar Sigurjónssonar. Jóhanna Guðrún verður ein af strumpunum. „
Ég fór í prufur eins og allir aðrir og er trúlega kominn með hlutverk. Ég verð Kjartan galdrakarl en fæ ekki að tala fyrir strump. Ég hafði vonast eftir að fá að tala fyrir Æðstastrump en ég verð bara venjulegur maður," segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Stórtíðindi verða í sögu íslensk barnaefnis þegar Strumpamyndin verður frumsýnd í ágúst því Laddi, sem talaði fyrir alla strumpana í frægum sjónvarpsþáttum, verður ekki einn af strumpunum. „Nei, þessi mynd verður aðeins öðruvísi, strumparnir í myndinni eru bara með venjulegar raddir. En galdrakarlinn er náttúrlega mjög skemmtileg týpa og það verður mjög skemmtilegt að tala fyrir hann," segir Laddi sem viðurkennir að honum þyki þetta eilítið leiðinlegt. „Þetta eru nú bláu börnin manns." Sigurður Sigurjónsson leikstýrir talsetningu myndarinnar. Hann játar það fúslega að það sé ákveðin áhætta fólgin í því að láta Ladda ekki tala fyrir strumpana í myndinni í ljósi sögunnar. „En hann talar fyrir Kjartan og mér skilst að hann sé bara nokkuð sáttur með það hlutverk. Ég hefði samt ekki treyst mér í þetta verkefni án Ladda." Sigurður kveðst þó vera með nokkra ása uppí erminni. Þannig tali Jóhanna Guðrún inn á myndinni og syngi gullfallegt lag. Hvað hlutverk Æðstastrumps varðar verður það í höndum Haralds G. Haraldsson og þá munu þeir Guðjón Davíð Karlsson og Kjartan Guðjónsson einnig tala fyrir bláa smáfólkið.-fgg
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira