Flytur með fjölskyldu sína í Hrafnabjörg á næsta ári 30. maí 2011 08:30 Hrafnabjörg við Eyjafjörð er eitt glæsilegasta hús landsins. Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, lét byggja húsið á sínum tíma. „
Já, ég keypti húsið fyrir skömmu," segir hinn svissneski Thomas Martin Seiz. Seiz er nýr eigandi Hrafnbjarga, sem var áður í eigu Jóhannesar Jónssonar, kenndan við Bónus, og er eitt af glæsilegustu einbýlishúsum landsins. Seiz segist í samtali við Fréttablaðið ætla að flytja inn í húsið á næsta ári ásamt fjölskyldu sinni. „Við erum að laga innréttingar og breyta einu og öðru," segir hann. Thomas Seiz rekur tvö tölvufyrirtæki í heimalandi sínu ásamt því að reka ferðaþjónustu á Nolli í Eyjafirði. Í frétt DV í apríl kom fram að svissneskur auðkýfingur hafi keypt hús Jóhannesar, en Seiz segir þá fullyrðingu ekki standast. „Ég er ekki að safna húsum og ég er ekki auðkýfingur eins og sagt var í DV," segir hann. Seiz leigir út tvö sumarhús á sveitabænum Nolli í Eyjafirði. Þá á hann tvö íbúðarhús í Grenivík, annað er leigt út en hitt verður mögulega rifið til að koma fyrir nýju húsi. Salan á Hrafnabjörgum vakti mikla athygli í apríl, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins borgaði Seiz hátt í 200 milljónir fyrir húsið. Skilanefnd Landsbanka Íslands leysti til sín húsið í desember í fyrra, en það var áður í eigu Gaums, eignarhaldsfélags feðganna Jóhannesa Jónssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Arkitektinn Fanney Hauksdóttir teiknaði Hrafnabjörg. Hún sagði í samtali við Fréttablaðið í apríl húsið vera einstakt að mörgu leyti. „Það var mikið lagt í húsið. Mikill metnaður," sagði hún. Ekkert var til sparað við byggingu hússins og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var kostnaðurinn hátt í 400 milljónir. Húsið er á tveimur hæðum og á efri hæðinni mynda stofan, borðstofan og eldhúsið eitt stórt og opið rými. Gólfsíðir útsýnisgluggar eru í stofunni ásamt arni. Á neðri hæðinni má meðal annars finna tæknirými, líkamsræktaraðstöðu og tvö baðherbergi. Fyrir utan er 40 fermetra sundlaug og stór heitur pottur. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira