Þýska þjóðin hituð upp 28. maí 2011 13:30 Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Halldórsson og Ugla Egilsdóttir ásamt Þjóðverjunum Noru Gomringer, Finn-Ole Heinrich og Hannes Wittmer.
Sagnararfur og þjóðardramb Íslendinga er á meðal þess sem sex listamenn velta fyrir sér í ljóða-, leikhús-, sagna- og tónlistarsýningunni Bændur flugust á sem verður flutt í Tjarnarbíói á morgun. Verkið er hluti af Listahátíð í Reykjavík og listamennirnir sem um ræðir eru Bergur Ebbi Benediktsson, Halldór Halldórsson, Ugla Egilsdóttir ásamt Þjóðverjunum Noru Gomringar, Finn-Ole Heinrich og Hannes Wittmer sem er einnig þekktur sem Spaceman Spiff. Í sýningunni velta listamennirnir meðal annars fyrir sér hvort Íslendingasögurnar séu heimild um stórmennsku Íslendinga á miðöldum eða Eurovision-framlag síns tíma. Þá er velt fyrir sér hvort útlendingar hafi einhvern áhuga á Íslendingasögum eða hvort það þurfi að tjúna sögurnar upp með álfum og einhyrningum til að þær passi inn í þá ímynd sem þeir hafa af Íslandi. Ísland verður heiðursgestur á Bókasýningunni í Frankfurt í október næstkomandi. Íslenskar bókmenntir hafa löngum notið vinsælda í Þýskalandi og nú er væntanleg ný heildarþýðing Íslendingasagna á þýsku. Verkinu Bændur flugust á er ætlað að hita þýsku þjóðina upp fyrir Bókasýninguna í Frankfurt og verður sýnt víðs vegar um Þýskaland fram á haust. - afb
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira