Lífið

Græðir vel á brúðkaupinu

E! sjónvarpsstöðin verður að öllum líkindum viðstödd brúðkaup Kim Kardashian og verðandi eiginmanns hennar, Kris Humphries.
nordicphotos/getty
E! sjónvarpsstöðin verður að öllum líkindum viðstödd brúðkaup Kim Kardashian og verðandi eiginmanns hennar, Kris Humphries. nordicphotos/getty
Kardashian-fjölskyldan kann sitt fag þegar kemur að raunveruleikasjónvarpi. Áhorfendur hafa fengið að fylgjast með brasilísku vaxi hjá þeim, fæðingu og brúðkaupi. Og hún er hvergi nærri hætt.

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian trúlofaðist nýverið körfuknattleikmanninum Kris Humphries. Þau voru búin að vera saman í sex mánuði og samkvæmt bandarískum slúðursíðum gat Humphries ekki beðið lengur og skellti sér á skeljarnar á heimili Kim í Beverly Hills þann 18.maí, hann hafði þá dreift rósarblöðum um allt baðherbergisgólfið.

Stúlkan játaðist honum um leið, sem betur fer, því trúlofunarhringurinn kostaði litlar tvær milljónir dollara. Kim hyggst hins vegar einnig græða duglega á brúðkaupinu sínu og til stendur að sjónvarpsstöðin E! myndi athöfnina. Þetta er engin nýlunda hjá Kardashian-fjölskyldunni því yngri systir hennar Khloé og maðurinn hennar, NBA-leikmaðurinn Lamar Odom, giftust einnig fyrir framan tökuvélarnar.

„Þetta fylgir þessu. Við höfum selt E! sjónvarpsstöðinni sálu okkar,“ segir Kourtney, yngri systir Kim. Sál Kardashian-fjölskyldunnar er ekkert ódýr og talið er að brúðhjónin muni græða á tá og fingri þegar þau segja já við hvort annað. Mark Pasetsky, blaðamaður hjá Forbes, hefur þegar spáð því að ljósmyndaréttur að brúðkaupinu eigi eftir að verða seldur á tvær milljónir dollara og ofan á þær eigi eftir að bætast við milljón fyrir réttinn á alþjóðavísu.

Samkvæmt vefsíðunni Popeater er ekki víst að Humphries geri sér grein fyrir útí hversu djúpa laug hann er komin, hann hefði þó átt að vita að Kim Kardashian er hæstlaunaðasta raunveruleikastjarna Bandaríkjanna með um sextán milljónir dollara í árslaun. Og Kim veit nákvæmlega hvað hún er að gera. „Mig hefur alltaf dreymt um glæsilegt brúðkaup og ég á sennilega eftir að gera eitthvað stórfenglegt og ýkt. En maður verður líka að passa uppá fjölskylduna því lífið snýst jú um hana.“ - fgg/sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.