Lífið

Hárkolla Arnars Gunnlaugs slær í gegn

Landslið U21 hefur slegið rækilega í gegn að undanförnu en liðið leikur í úrslitakeppni Evrópumótsins í júní í Danmörku. Og nú er búið að gera auglýsingar til að skapa smá stemningu fyrir mótið.

„Við vildum finna flöt á EM U21 í fótbolta sem undirstrikaði hvað þetta er í raun frábær árangur hjá þessum strákum og kitla þjóðarstoltið örlítið í leiðinni," segir Guðmundur Kárason.

Ásamt Ívari Bjarklind, Sævari Guðmundssyni og Ágústi Haukssyni á hann heiðurinn af auglýsingum fyrir Ríkissjónvarpið til að vekja athygli á EM U21 í fótbolta, en auglýsingar hafa vakið athygli í netheimunum.

Ívar Bjarklind átti grunnhugmyndina að auglýsingunum en það voru Guðmundur og Sævar sem útfærðu þær. Þeir reka ásamt Ágústi Haukssyni upptöku- og framleiðslufyrirtækið Purkur ehf. Mynd/Anton
Í auglýsingunum má sjá gamlar kempur úr fótboltanum reyna að smygla sér inn í hópinn hjá strákunum en A-landslið Íslands hefur aldrei náð þeim góða árangri að komast á stórmót í knattspyrnu. Auglýsingarnar eru þrjár talsins og þar leika knattspyrnukapparnir Pétur Marteinsson, Arnar Gunnlaugsson og Tryggvi Guðmundsson lykilhlutverk.

Horfa á auglýsinguna með Pétri Marteins.

Horfa á auglýsinguna með Tryggva Guðmunds.

Horfa á auglýsinguna með Arnari Gunnlaugs (einnig er hægt að horfa á hana hér fyrir ofan).

„Við ákváðum að nýta þekkt andlit úr boltanum, sem aldrei hafa verið nálægt því að ná öðrum eins árangri með landsliðinu, til að vekja athygli á strákunum í unglingalandsliðinu," segir Guðmundur og bætir við að fótboltakempurnar hafi strax tekið mjög vel í þessa hugmynd og upptökuferlið verið skemmtilegt.

Pétur Marteins reynir að koma strákunum í stuð við tóna Ace of Base en fær dræmar undirtektir og er loks rekinn út.
„Við tókum upp þrjár auglýsingar á sex klukkutímum, sem er mjög knappur tími enda gefur maður sér venjulega heilan dag fyrir 50 sekúndna bút. Það var hávaðarok og allir að drepast úr kulda en strákarnir voru fagmenn fram í fingurgóma," segir Guðmundur.

Hann viðurkennir að það sé ekkert gefið að góðir íþróttamenn séu líka góðir leikarar en þeir Pétur, Arnar, Tryggvi og Eyjólfur Sverrisson sýndu stjörnutakta að mati Guðmundar.

„Þeir voru rosalega góðir og komu okkur á óvart. Það var náttúrlega snilld að koma hárkollunni á Arnar, hann tekur sig vel út."

alfrun@frettabladid.is

Tryggvi Guðmundsson skilur ekki af hverju hann getur ekki fengið að vera með í reit og reynir að hrista strákana til.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.