Lífið

Pippa eftirsótt

Pippa Middleton, litla systir Kate Middleton, hefur slegið í gegn og nú rignir starfstilboðunum yfir hana.
Nordicphotos/getty
Pippa Middleton, litla systir Kate Middleton, hefur slegið í gegn og nú rignir starfstilboðunum yfir hana. Nordicphotos/getty
Pippa Middleton, yngri systir hertogynjunnar af Cambridge, er sjóðheit um þessar mundir. Ljósmyndarar elta hana á röndum og vikulega birtast nýjar fréttir af stúlkunni. Þær nýjustu herma að sjónvarpsdrottningarnar Oprah Winfrey og Barbara Walters séu báðar á höttunum eftir Middleton.

 

„Þegar Kate Middleton hætti um stund með Vilhjálmi reyndi Barbara að fá hana til starfa í sjónvarpsþættinum The View. Núna vill Barbara fá systur hennar, Pippu, til að ganga til liðs við The View. Pippa er ung, fögur og mun án efa auka áhorf þáttarins,“ var haft eftir heimildarmanni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.