Íslenskir huldumenn opna hamborgarastað á Spáni 27. maí 2011 12:15 Starfsfólk Gourmet Burger í ferðmannaborginni Torrevieja á Spáni. „
Þeir vilja nú helst ekki láta nafns síns getið," segir Eyþór Eiríksson, sem rekur hamborgarastað í borginni Torrevieja á Spáni. Tveir íslenskir athafnamenn hafa opnað staðinn Gourmet Burger. Þeir hafa reynslu af veitingarekstri á Íslandi en annað vildi Eyþór ekki segja blaðamanni um eigendurna. „Þetta eru Íslendingar sem sáu að þetta vantaði hér, að fá alvöru hamborgara. Þetta er réttur sem Spánverjinn kann ekki að búa til, eða Bretinn." Staðurinn var opnaður fyrir mánuði og þar svífur andi sjöunda áratugarins yfir vötnum. Að sögn Eyþórs var mikil vinna lögð í að finna slátrara sem gat búið til alvöru hamborgara eins og við Íslendingar þekkjum með 100% nautakjöti. Ekki borgara sem bragðast eins og kjötfars eins og oft vill verða á spænskum veitingastöðum. Ferskar kjúklingabringur og steikur gerðar úr nautalundum fást einnig á Gourmet Burger, auk þess sem hin séríslenska kokkteilsósa er auðvitað á sínum stað. Hingað til hafa útlendingarnir ekki litið við henni en vonir standa til að þeir komist á bragðið með tíð og tíma.Hamborgararnir eru úr 100% nautakjöti.Miðað við metnað Eyþórs og félaga í Torrevieja er ljóst að þeir ætla sér stóra hluti í framtíðinni. Hann hlær, spurður að því hvort nú sé röðin komin að hinni íslensku hamborgaraútrás í stað hinnar misheppnuðu fjármálaútrásar. „Þarna er ekki verið að plata neinn og leika sér með einhverjar tölur sem eru ekki til. Hérna fá allir sinn hamborgara á diskinn." Auk Eyþórs starfa níu manns á Gourmet Burger, þar af fimm Íslendingar. Hann segir að viðbrögðin hafi verið góð, sérstaklega miðað við að hann er glænýr á markaðnum. „Það þarf stundum að telja fólki trú um að maður sé að selja alvöru hamborgara. Maður er búinn að sjá matseðla á öðrum stöðum og borða á öðrum stöðum. Þeir auglýsa hiklaust 100% nautakjöt og þá skiptir engu máli hvað þeir eru með í raun og veru. En maður er farinn að sjá fólk koma tvisvar til þrisvar sinnum aftur hingað og þá veit maður að maður er á réttri leið," segir hann. „Svo kemur ferðamannastraumurinn um mánaðamótin. Þá er fullt af Íslendingum og mér skilst að það sé vel bókað út í fluginu í sumar." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira