Lífið

Kæruleysislegt en ekki asnalegt

Dr. Gunni og Felix Bergsson eru að fara af stað með sjöundu þáttaröðina af Popppunkti.fréttablaðið/stefán
Dr. Gunni og Felix Bergsson eru að fara af stað með sjöundu þáttaröðina af Popppunkti.fréttablaðið/stefán
Sjöunda þáttaröð Popppunkts hefst á laugardagskvöld í Sjónvarpinu þegar Vinir Sjonna og Stjórnin eigast við.  Sumarið leggst vel í spurningahöfundinn Dr. Gunna, sem er að vonum ánægður með vinsældirnar sem þættirnir hafa notið. „Fólk hefur haft það á orði að þetta sé kæruleysislegt en samt ekki asnalegt,“ segir hann.

 

Tvær nýjungar verða í boði í dagskrárliðnum Popphjólið. Annars vegar þurfa menn að prófa sig áfram í nýstárlegum nefflautuleik og hins vegar verður þraut þar sem menn þurfa að blanda í flösku líkt og þeir væru í rútu á leiðinni á sveitaball.

 

Á meðal annarra sveita sem taka þátt í sumar verða Mezzoforte, Skálmöld og Todmobile. Einnig taka þátt í fyrsta sinn tvö lið skipuð sólótónlistarmönnum. Þar mætast í einum þætti lið skipað Eyjólfi Kristjánssyni, Orra Harðarsyni og Pétri Ben og lið skipað þeim Ellen Kristjánsdóttur, Hafdísi Huld og Heru Björk.

 

Popppunktsþættirnir eru orðnir vel yfir eitt hundrað. Aðspurður segist Dr. Gunni síður en svo vera orðinn uppiskroppa með spurningar. „Ég held að við getum alveg gert þessa þáttaröð og hugsanlega eina í viðbót án þess að þetta verði eitthvað vandræðalegt. Í þessum bransa bætast líka alltaf við nýjar hljómsveitir.“

 

Lights on the Highway sigraði í síðasta Popppunkti. Á meðal annarra sigurvegara eru Ljótu hálfvitarnir sem eiga jafnframt stigamet þáttanna. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.