Orðnir nógu miðaldra fyrir útrás til Danmerkur 26. maí 2011 19:00
Ein langlífasta rokkhljómsveit Íslands, Ham, er að fara halda sína fyrstu tónleika í útlöndum í fimm ár. Þeir leita reyndar ekki langt yfir skammt heldur verða með tvenna tónleika í Danmörku, eina á Spot í Árósum og aðra í Kaupmannahöfn. „Ef tónleikarnir frá 2006 eru teknir frá þá höfum við ekki spilað erlendis síðan í New York, sællar minningar," segir Sigurjón Kjartasson, Ham-liði, í samtali við Fréttablaðið. Umrædd New York-ferð er sennilega ein frægasta rokkreisa íslenskrar hljómsveitar í háa herrans tíð. Sigurjón vill raunar ekki mikið gera úr meintri útrás til Danmerkur, segir það að fara til Kaupmannahafnar vera svipað og að fara til austfjarða, það búi álíka margir Íslendingar þar. „Þannig að þetta er miklu meira Íslendingaheimsókn." Ham fór nýverið í hljóðver og er búin að klára tíu laga plötu sem á að koma út um mánaðarmótin ágúst/september. Henni hefur verið gefið hið lágstemmda nafn Svik, Harmur og Dauði og segir Sigurjón að sveitin hafi verið í alveg sérstaklega góðum fíling. „Það er kraftur í Ham. Þetta er nefnilega í fyrsta skipti, síðan 1989, að við förum í hljóðver gagngert til að taka upp plötu." Fáar rokksveitir geta státað sig af því að vera með handritshöfund að helstu sjónvarpsseríum landsins, aðstoðarmann borgarstjóra og borgarfulltrúa innan sinna vébanda. En það getur Ham; Sigurjón hefur skrifað handritið að sjónvarpsþáttum á borð við Pressu og Rétt, Björn Blöndal,bassaleikari,er aðstoðamaður Jóns Gnarr og Óttar Proppé, söngvari, er borgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn. Sigurjón segir sveitina hins vegar blessunarlega lausa við alla pólitík, lýðræðið sé mjög einfalt í sniðum, menn vegi og meti hvar og hvenær eigi að spila. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt, eiginlega alveg sérstaklega skemmtilegt. Kannski er lykillinn að þessu að starfa alltaf saman með löngum hléum inná milli," en Ham verður 23 ára í ár. freyrgigja@frettabladid.is Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá upphafsmínútur heimildarmyndarinnar Lifandi dauðir, sem gerð var um hljómsveitina.
Mest lesið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira