Heimilislegt yfirbragð 26. maí 2011 08:00 Sjöunda hljóðversplata Death Cab for Cutie kemur út eftir helgi. nordicphotos/getty
Bandaríska hljómsveitin Death Cab for Cutie er mætt með sína sjöundu hljóðversplötu. Heimilið er þar í aðalhlutverki. Sjöunda hljóðversplata bandarísku indíhljómsveitarinnar Death Cab for Cutie kemur út í næstu viku. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu, Narrow Stairs, sem fékk fínar viðtökur víðast hvar. Death Cab for Cutie var stofnuð í borginni Bellingham í Washington-ríki árið 1997. Hljómsveitin var upphaflega sólóverkefni Bens Gibbard á sama tíma og hann var gítarleikari í bandinu Pinwheel auk þess sem hann tók upp lög undir nafninu All-Time Quarterbacks. Fyrsta útgáfa Death Cab for Cutie, kassettan You Can Play These Songs with Chords, gekk betur en búist var við og í framhaldinu hóaði Gibbard í gítarleikarann Chris Walla, Nick Harmer bassaleikara og Nathan Good trommara, sem síðar hætti í bandinu, og ákvað að stofna alvöru hljómsveit. Fyrsta stóra platan, Something About Airplanes, kom út árið 1998 og fékk góða dóma innan óháðu tónlistarsenunnar. Tveimur árum síðar kom út næsta plata, We Have the Facts and We’re Voting Yes, og önnur fylgdi á eftir tveimur árum síðar, The Photo Album. Á þessum tíma var Death Cab for Cutie farin að vekja athygli fyrir melódískt og vel samið gítarpopp sitt með áhugaverðum textum Gibbards og eftir útgáfu Transatlanticism árið 2003 samdi sveitin við útgáfurisann Atlantic. Það kom ekki á óvart enda höfðu lög af Transatlanticism heyrst víða, þar á meðal í sjónvarpsþáttunum The O.C., Six Feet Under og CSI Miami, auk þess að hljóma í gamanmyndinni vinsælu Wedding Crashers. Fyrsta platan undir merkjum Atlantic, Plans, kom út 2005 og var hún töluvert poppaðari en sú síðasta. Hún varð fyrsta plata Death Cab for Cutie til að ná platínusölu, eða einni milljón eintaka, og var tilnefnd til Grammy-verðlaunanna sem besta „alternative“-platan. Narrow Stairs fylgdi í kjölfarið árið 2008 og var fyrsta plata sveitarinnar til að ná efsta sæti Billboard-listans. Hún var vel heppnuð en eilítið myrkari en Plans, enda var Gibbard að ganga í gegnum erfiðleika í einkalífi sínu. Á nýju plötunni, Codes and Keys, er léttleikinn orðinn meiri, en bæði Gibbard og Walla hafa lýst því yfir að gítarinn hafi aldrei verið eins lítið áberandi og núna. Fyrsta smáskífulagið, hið grípandi You Are a Tourist, ber þó ekki vott um það. „Mér finnst vera heimilislegt yfirbragð á plötunni, líklega vegna breytinganna í lífi mínu,“ sagði Gibbard. „Ég flutti frá Seattle til Los Angeles og gekk í hjónaband. Ég hef enduruppgötvað hvaða þýðingu orðið heimili hefur fyrir mér.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið Fleiri fréttir Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Sjá meira