Tenórinn í Hörpu með grúppíuhóp 25. maí 2011 08:00 Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur komu gagngert til Íslands til að sjá Jonas Kaufmann syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Fréttablaðið/GVA
Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur þýska tenórsins Jonasar Kaufmann voru í Eldborgarsal Hörpunnar þegar hann þandi raddböndin með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Margra mánaða og jafnvel ára bið er eftir miðum á tónleika Kaufmanns í Evrópu. Fjöldi erlendra blaðamanna var jafnframt á landinu til að vera viðstaddir opnun Listahátíðar Reykjavíkur og að sjálfsögðu voru þeir á tónleikum Kaufmanns. Paul Gent hjá The Daily Telegraph gaf Kaufmann og Sinfóníuhljómsveitinni fimm stjörnur í grein sem birtist í gær en það voru kannski ekki allir erlendu blaðamennirnir sem komu stjórnendum listahátíðarinnar á óvart, heldur þeir fjölmörgu erlendu aðdáendur sem lögðu leið sína alla leið til Íslands til að hlusta á þýska tenórinn. „Þetta voru í kringum fjögur hundruð manns, sumir komu í hópum og aðrir voru bara á eigin vegum. Flest af þessu fólki slapp hins vegar við eldgosið, það átti pantað flug heim á sunnudeginum," segir Steinunn Þórhallsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Listahátíðarinnar. Kaufmann sjálfur slapp líka rétt fyrir horn, hann flaug af landi brott á sunnudeginum, áður en flugumferð var bönnuð. Steinunn segir að þau hafi fundið strax fyrir miklum áhuga á tónleikunum þegar tilkynnt var að Kaufmann myndi koma fram á Listahátíð í Reykjavík. „Fyrirspurnir fóru strax að berast að utan og fólk var farið að bíða eftir því að miðasalan hæfist," segir Steinunn en Kaufmann brást ekki sínu fólki frekar en fyrri daginn og töfraði fram mörg ógleymanleg augnablik sem hreyfðu við konum jafnt og körlum. -fgg
Mest lesið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira