Lífið

Vill ekki hjónaband

Johnny Depp segist ekki hafa þörf fyrir trúlofun og hjónaband en hann hefur verið með Vanessu Paradis í þrettán ár. Nordicphoto/getty
Johnny Depp segist ekki hafa þörf fyrir trúlofun og hjónaband en hann hefur verið með Vanessu Paradis í þrettán ár. Nordicphoto/getty
Leikarinn og sjarmörinn Johnny Depp hefur engan áhuga á að ganga í hjónaband með kærustu sinni Vanessu Paradis. Þetta kemur fram í nýlegu viðtali sem birtist í breska blaðinu OK.

Depp hefur verið í sambandi með frönsku söngkonunni Paradis í þrettán ár og eiga þau saman tvö börn. „Við finnum ekki þörfina til að gefa hvort öðru loforð opinberlega. Sumir ákveða að feta þá braut en ekki við," segir Depp en bætir við að hann sé mikill fjölskyldumaður og sakni hennar mikið þegar hann er á ferðalögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.