Lífið

Laus og liðug

Á lausu Cheryl Cole sagði dansaranum Derek Hough upp. Hún er nú laus og liðug.nordicphotos/getty
Á lausu Cheryl Cole sagði dansaranum Derek Hough upp. Hún er nú laus og liðug.nordicphotos/getty
Söngkonan Cheryl Cole á að hafa hætt með kærasta sínum, dansaranum Derek Hough. Cole flutti nýverið til Los Angeles, þar sem hún sest í eitt dómarasætið í bandarísku X Factor þáttunum.

„Cheryl tilkynnti Derek að sambandinu væri lokið stuttu eftir að hún flutti til Los Angeles. Þetta tók mjög á Derek því hann hafði stutt hana eftir skilnaðinn hennar og þegar hún veiktist af malaríu,“ var haft eftir heimildarmanni. „Honum finnst hann svikinn og finnst sem Cheryl hafi notað hann. Cheryl er mjög metnaðargjörn og gullfalleg, ég held það sé bara tímaspursmál hvenær hún verður komin með heimsfræga stjörnu upp á arminn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.