Lífið

Tvær bækur til Bandaríkjanna

Forlagið Macmillan hefur tryggt sér útgáfuréttinn á tveimur bókum Yrsu Sigurðardóttur.
Forlagið Macmillan hefur tryggt sér útgáfuréttinn á tveimur bókum Yrsu Sigurðardóttur.
Forlagið Macmillan sem er meðal annars með bækistöðvar í Bandaríkjunum hefur tryggt sér útgáfuréttinn á tveimur bókum Yrsu Sigurðardóttur, Auðninni og Ég man þig þar í landi. Áður hafði forlagið fest kaup á Ösku, sem er væntanleg á markað á þessu ári.

 

„Þetta er svo hrikalega erfiður markaður í Ameríku. Það að komast inn með bók er frábært, hvað þá að vera gefinn út reglulega, sem er meiriháttar afrek,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti og Veröld. Yrsa bætist þar með í hóp Arnaldar Indriðasonar og Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, sem hafa báðir verið gefnir út reglulega í Bandaríkjunum.

 

Auðnin kom út árið 2008 á Íslandi og hefur selst í um sautján þúsund eintökum. Ég man þig, sem kom út fyrir síðustu jól, hefur selst í hátt í tuttugu þúsund eintökum. Sigurjón Sighvatsson hefur keypt kvikmyndaréttinn að síðarnefndu bókinni, eins og Fréttablaðið hefur sagt frá, og þessi útgáfa hennar í Bandaríkjunum á vafalítið eftir að ýta undir áhugann á myndinni. Aðspurður segist Pétur Már ekki vita í hve mörgum eintökum Ég man þig verður gefin út. Það gæti verið allt frá tíu þúsund eintökum upp í hundrað þúsund.

 

Yrsa tekur um þessar mundir þátt í Crimefest, mikilli glæpasagnahátíð í Englandi þar sem fjöldi rithöfunda, einkum breskra, stígur á stokk. Þar kemur hún tvisvar fram í pallborðsumræðum í dag.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.