Lífið

Norska ríkissjónvarpið vill endurgera Næturvaktina

Næturvaktin verður væntanlega endurgerð í Noregi en norska ríkissjónvarpið hefur ekki keypt sýningarréttinn að þáttunum þar sem það vill gera sína eigin útgáfu. Þeir Georg, Daníel og Ólafur Ragnar gætu því eignast norska frændur í náinni framtíð.
Næturvaktin verður væntanlega endurgerð í Noregi en norska ríkissjónvarpið hefur ekki keypt sýningarréttinn að þáttunum þar sem það vill gera sína eigin útgáfu. Þeir Georg, Daníel og Ólafur Ragnar gætu því eignast norska frændur í náinni framtíð.
„Norðmennirnir eru mjög áhugasamir og endurgerðin lítur mjög vel út þar. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að þeir hafa ekki keypt sýningarréttinn, þeir vilja gera sína eigin útgáfu,“ segir Kjartan Þórðarson, framkvæmdastjóri Saga Film.

Norska ríkissjónvarpið, NRK, hefur í hyggju að endurgera hina íslensku Næturvakt. Ekki liggur þó fyrir hvenær það verður.

Mikið hefur verið rætt og ritað um endurgerð Næturvaktarinnar í Bandaríkjunum í fjölmiðlum og ekki er langt síðan greint var frá því að gamanleikarinn Jack Black væri þar með í ráðum. Nú stendur hins vegar yfir hið svokallaða „pilot“-tímabil þegar stóru sjónvarpsstöðvarnar prófa nýja þætti, en Næturvaktin var ekki meðal hinna útvöldu.

Kjartan segir að Ameríkuævintýrið hafi komið svolítið óvænt upp í hendurnar á Vaktarmönnum og áhugi Bandaríkjamanna hafi komið þeim í opna skjöldu; sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndunum hafi til að mynda verið fyrri til að sýna áhuga. „Það er búið að skrifa tvö mismunandi handrit fyrir Ameríkumarkað og samkvæmt þeim vildu þeir flækja aðeins hlutina, fá inn fleiri persónur og hafa fleiri staði en bara eina bensínstöð. Við vorum ekkert allt of hrifnir af þeirri hugmynd; vinsældir Næturvaktarinnar byggja að mörgu leyti á einfaldleika þáttanna.“

Kjartan bendir jafnframt á endurgerð Glæpsins eða Forbrydelsen í Bandaríkjunum og segist hafa viljað sjá Næturvaktina fara í þá áttina. „Þeir halda sig mjög nálægt upprunanum, aðalpersónurnar eru til dæmis danskir innflytjendur og umhverfi þáttanna er allt mjög „danskt“. Það lék líka lykilhlutverk í vinsældum þáttanna.“

Næturvaktin var sýnd á BBC Four í síðustu viku og Kjartan segir það nánast lygilegt hversu miklum árangri það hafi skilað; síminn hafi varla stoppað í höfuðstöðvum Saga Film. „Þegar við vorum að reyna að selja þáttaröðina á sínum tíma fengum við alltaf að heyra að tungumálið myndi vefjast fyrir áhorfendum. Með þessu framtaki BBC eru aðrar sjónvarpsstöðvar reiðubúnar að endurskoða það, því það hefur augljóslega verið horft á þættina og menn hafa myndað sér skoðanir á þeim. Við vorum til að mynda í síðustu viku að kynna þættina fyrir 43 dagskrárstjórum hjá sjónvarpsstöðvum í Evrópu. Fyrir sýningarnar á BBC höfðum við ekki haft aðgang að slíkum fundum.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.