Dóp og slagsmál í Quarashi-mynd 6. maí 2011 18:00 Heimildarmynd um rappsveitina Quarashi er í undirbúningi. Hún kemur út með haustinu. mynd/ÞÖK
Ný heimildarmynd um rappsveitina Quarashi er í undirbúningi. Leikstjórinn Gaukur Úlfarsson, sem vann mikið með sveitinni á sínum tíma, kemur að vinnslu myndarinnar. Hann mun þó ekki leikstýra myndinni. „Ég á ótrúlega mikið af myndefni. Ég gerði eina heimildarmynd um þá og ógrynni af tónlistarmyndböndum. Það eru líka til heilu tónleikarnir sem voru teknir upp í Japan og stórir tónleikar í Ameríku með mörgum myndavélum," segir Gaukur en efnið hefur aldrei áður litið dagsins ljós. Einnig er til myndefni af Quarashi í hljóðveri með bandarísku rappsveitinni Cypress Hill. Gaukur gerði heimildarmyndina „Um landið á lyfjum" sem fjallaði um Quarashi og kom út árið 1999. Þá elti hann hljómsveitina út um allar trissur með myndatökuvélina. Nýja heimildarmyndin er unnin í tilefni þess að Quarashi kemur saman á nýjan leik á Bestu útihátíðinni sem verður haldin í júlí. Popparinn Birgir Örn Steinarsson, kynningarfulltrúi Quarashi, er að skrifa handrit myndarinnar og vinna úr myndefninu ásamt liðsmanni sveitarinnar Sölva Blöndal. Æfingar Quarashi í sumar í tengslum við útihátíðina verða teknar upp fyrir myndina sem og endurkomutónleikarnir sjálfir. „Allir liðsmenn Quarashi eru búnir að lofa að tala mjög opinskátt um tíma sinn í hljómsveitinni. Öll slagsmálin, öll rifrildin, allt dópið og allt saman fær að fljóta með," segir Birgir Örn og á þar við dópið sem var allt í kringum sveitina. Stefnt er að útgáfu myndarinnar með haustinu. -fb
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira