Árni Sveinsson frumsýnir nýja mynd í Hörpu 28. apríl 2011 20:00 Árni Sveinsson kannar stöðu íslenskra tónlistarmyndbanda. Fréttablaðið/Valli
Kvikmyndagerðarmaðurinn Árni Sveinsson er að leggja lokahönd á heimildarmyndina Video, sem fjallar um stöðu tónlistarmyndbandsins í dag. Myndin verður frumsýnd í bíósal Hörpunnar 16. maí og verður hún eingöngu sýnd þar. „Tónlistarmyndbandið er ungt form en hefur samt breyst ótrúlega mikið,“ segir Árni, sem síðast leikstýrði vel heppnaðri heimildarmynd um Ragga Bjarna. „Það er ekkert svo langt síðan útlit var fyrir að það væri að deyja drottni sínum. Stóru fyrirtækin voru efins um að setja peninga í þessi myndbönd því stóru stöðvarnar eins og MTV voru að hrynja,“ bætir hann við. „Síðan hefur það gerst síðastliðin tvö til þrjú ár með netbylgjunni eins og Youtube og Facebook að staðan hefur gjörbreyst. Myndbandið er orðið leið fyrir hljómsveitir til að gera sín eigin myndbönd utan við eitthvert fyrirtæki. Með netmiðlinum ná þær að kynna sig og tónlistina sína á allt annan hátt.“ Árni er reyndur í gerð tónlistarmyndbanda því hann hefur unnið fyrir hljómsveitir á borð við GusGus, Quarashi og Retro Stefson á ferli sínum. Fyrstnefnda hljómsveitin kemur einmitt við sögu í nýju myndinni, auk poppbandsins Berndsens og fleiri hljómsveita. Nýja heimildarmyndin verður um 35 mínútna löng og er samstarfsverkefni Árna og Hörpunnar. Vinnan hefur staðið yfir undanfarna mánuði og hlakkar Árni mjög til að sýna hana í Hörpusalnum, sem tekur um 120 manns í sæti. Leikstjórinn er með fleiri járn í eldinum því heimildarmynd hans Backyard, sem fjallar um nokkrar íslenskar hljómsveitir, hefur verið valin til sýninga á tveimur alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, í Karlovy Vary í Tékklandi og Seattle í Bandaríkjunum. Hátíðin í Tékklandi er ein sú elsta og virtasta í heiminum og verður haldin 19. maí til 12. júní. Backyard kemur út á mynddiski á Íslandi í byrjun júní og einnig kemur út geisladiskur með tónlist úr myndinni. Myndin verður svo gefin út á mynddiski á alþjóðavísu í september. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Fleiri fréttir Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Sjá meira