Ég bjóst við skömmum 20. apríl 2011 21:00 Styrmir Bjarnason tölvugúrú og fis-flugvélin hans, TF-150. Fréttablaðið/Anton „
Ég þvælist mikið um á fisflugvél og hef lent á yfir 100 flugvöllum á Íslandi, sem langflestir eru óskráðir, en líka á 130 stöðum utan valla, Það er ekki síður landið sem togar í mig en flugið," segir Styrmir Bjarnason, stofnandi og framkvæmdastjóri T1 Hugbúnaðarhúss. Hann kveðst hafa kynnst þunna loftinu í kringum aldamótin er hann hóf að fljúga á svifvæng. Síðan eignaðist hann franska fisflugvél með tveimur öðrum og eftir það hefur hann flogið í um 150-180 tíma á ári. „Þetta er tiltölulega ódýrt sport því fisvélarnar eyða litlu," lýsir hann og segir fisvélar kvikar og kröftugar því í þeim sé 100 ha hreyfill en tómar vegi þær 250 kíló. „Svo geta þær flogið á allt frá 50 km hraða upp í 180 og henta mér vel því ég hef líka mjög gaman af að taka myndir."Þessa mynd tók Styrmir í Landmannalaugum í júlí 2009.Styrmir neitar því ekki að hafa lent í brasi á fisinu. Segir varla annað hægt þegar flogið sé jafn mikið og hann gerir. „Ég afrekaði það fyrir tveimur árum að fljúga á raflínu. Var að koma frá Gullfossi og flaug niður með gljúfri Hvítár þar sem ég hugðist lenda en þar er langt haf milli raflínustaura. Þetta var einföld sveitalína en ég var svo heppinn að hún lenti á góðum stað á vélinni þannig að hún slitnaði. Púlsinn fór töluvert upp en ég setti á fullt afl og fann að vélin brást rétt við og svo lenti ég á túni í grenndinni. Bóndinn á bænum kom á vaðandi siglingu á fjórhjóli og ég bjóst við skömmum. Þá kom í ljós að hann hafði flogið með mér sumarið áður svo við vorum málkunnugir og meðan ég beið eftir lögreglunni bauð hann mér heim í kaffi. Á veröndinni var maður að pumpa gamaldags prímus og ég, borgardrengurinn, spurði: „Hvað, eruð þið enn að nota svona prímusa?" Þá svaraði hinn kurteislega. „Já, við erum nú bara rafmagnslaus hér þessa stundina."Ein af mörgum listrænum myndum sem Styrmir hefur smellt af úr lofti.Styrmir kveðst yfirleitt vera í slagtogi með öðrum í fluginu. „Við fljúgum mikið tveir og tveir saman öryggisins vegna, hvor á sinni vél. Leggjum oft af stað síðdegis, finnum okkur bændagistingu á leiðinni og lendum á vegum eða í fjörum því ef við höfum einhvern vind þurfum við bara 100-150 metra braut," lýsir hann og bætir við að lokum. „Alls staðar er tekið vel á móti manni. Flugið er svo jákvætt í hugum Íslendinga." gun@frettabladid.is„Þetta eru góðviðrisvélar eins og aðrar litlar flugvélar,“ segir Styrmir sem hér er í essinu sínu.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira