Margeir velur tónlistina í háloftunum 15. apríl 2011 12:00 Margeir ásamt syni sínum Krumma Arnari. Plötusnúðurinn er orðinn nokkurs konar tónlistarstjóri í flugvélum Icelandair. fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er frábær áskorun,“ segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson, sem er orðinn nokkurs konar tónlistarstjóri í flugvélum Icelandair. Margeir sér um að velja tónlistina sem hægt er að hlusta á í vélunum og sérstök áhersla verður lögð á allt það ferskasta sem hann telur vera í gangi hverju sinni í tónlistarheiminum. Íslenskri tónlist og tónlist sem tengist Iceland Airwaves-hátíðinni verður sömuleiðis gerð góð skil. „Maður hefur flogið töluvert og yfirleitt er þetta ansi skrautleg lyftutónlist sem heyrist almennt í flugvélum,“ segir Margeir. „Stundum, ef menn ætla að gera öllum til geðs, hef ég það á tilfinningunni að það virki ekki fyrir neinn. Ég held að fólk sé komið með nóg af lyftutónlist,“ segir hann. „Það er góð pæling að geta sest upp í vélina, sett á sig heyrnartólin og látið músíkina koma sér á óvart. Ég mun aldrei geta gert öllum til hæfis en maður gerir sitt besta.“ Ein nýjunganna sem Margeir býður upp á er að leyfa farþegum að hlusta á plötur sem eiga enn eftir að koma út. Sú fyrsta í röðinni er nýjasta plata GusGus, Arabian Horse, sem er væntanleg í búðir eftir rúman mánuð. Engin áhætta fylgir þessari nýbreytni því ekki er hægt að stela tónlist úr flugvélum, líkt og hægt er á netinu. „Við vitum ekki af neinu flugfélagi sem hefur gert þetta,“ segir Margeir. Biggi Veira í GusGus er ánægður með tilraunina. „Ég ferðast mikið sjálfur og fór að hugsa að ef það væru nýjar og spennandi plötur að hlusta á í vélinni væri þetta áhugaverður kostur fyrir mig,“ segir hann. „Mér fannst sniðugt að opna á þennan möguleika.“- fb
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira