Höll Jóhannesar í Bónus metin á hátt í 200 milljónir 13. apríl 2011 11:00 Ekkert var til sparað við byggingu á Sunnuhváli. Útsýnið úr húsinu er glæsilegt og þegar Eyjafjörður skartar sínu fegursta er auðvelt að týna sér í náttúrufegurðinni. Auðmaðurinn Jóhannes Jónsson lét byggja húsið en skilanefnd Landsbankans leysti það til sín í desember í fyrra.
d „Það er flott að sitja þarna inni og njóta útsýnisins," segir Fanney Hauksdóttir, arkitektinn á bak við glæsihýsið Sunnuhvál, sem var áður í eigu auðmannsins Jóhannesar Jónssonar. Skilanefnd Landsbankans leysti húsið til sín í desember á síðasta ári og setti á sölu í gær. Fjórar fasteignasölur sjá um að koma eigninni í verð, en ekki er gefið upp hvað skilanefndin hyggst fá fyrir húsið. Heimildir Fréttablaðsins innan fasteignasölubransans herma að 180 til 190 milljónir ættu að fást fyrir húsið og fasteignasalarnir sem talað var við eru sammála um að eignin sé ein sú glæsilegasta sem er í boði á landinu í dag. Húsið er samtals um 427 fermetrar og stendur á rúmlega eins hektara jörð. Aðspurð hvort húsið sé það glæsilegasta sem Fanney hefur hannað á ferli sínum, sem spannar tuttugu ár, segir hún að það sé einstakt að mörgu leyti. „Það var mikið lagt í húsið. Mikill metnaður." Ekkert var til sparað við byggingu hússins og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var kostnaðurinn hátt í 400 milljónir. Húsið er á tveimur hæðum og á efri hæðinni mynda stofan, borðstofan og eldhúsið eitt stórt og opið rými. Gólfsíðir útsýnisgluggar eru í stofunni ásamt arni. Á neðri hæðinni má meðal annars finna tæknirými, líkamsræktaraðstöðu og tvö baðherbergi. Fyrir utan er 40 fermetra sundlaug og stór heitur pottur. Útsýnið úr húsinu er stórkostlegt og Fanney segir að umhverfið hafi verið notað mikið við hönnunina. „Þú upplifir náttúruna og hvernig úti og inni rennur saman," segir hún. „Það var stórt atriði í hönnuninni að tengja hana náttúrunni. Þetta var mjög skemmtilegt verkefni. Það unnu allir saman og vel." En er ekki langt þangað til annað eins verkefni kemur á borð arkitekta á Íslandi? „Það hefur margt breyst og það eru aðrar áherslur í dag," segir Fanney, en bætir við að í grunninn séu markmiðin ávallt þau sömu. „Maður reynir að láta notkunina og stemninguna endurspeglast í arkitektúrnum."atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira