Katy Perry sökuð um stuld 4. apríl 2011 06:30
Aðdáendur Lady Gaga saka Katy Perry um stuld í nýjasta myndbandi þeirrar síðastnefndu. Aðdáendasíður Lady Gaga hafa gjörsamlega logað eftir að Perry frumsýndi ET-myndbandið sitt en þar sést söngkonan í líki geimveru. Perry er jafnframt mikið förðuð og látin líta út fyrir að vera blá og það er kannski einna helst það sem fer fyrir brjóstið á aðdáendum Gaga en þeir eru ákaflega trúir og tryggir sinni stjörnu. Vilja sumir meina að þar sé Perry að líkja eftir nýlegu sci-fi-myndbandi Gaga en söngkonan er þar förðuð eins og vélmenni. Aðdáendur Gaga hafa ausið úr skálum reiði sinnar og þannig skrifar einn: „Katy Perry-myndbandið ET er alltof Lady Gaga-legt. Bara Lady Gaga getur gert Lady Gaga-hluti." Annar aðdáandi er mun reiðari og segir: „Katy Perry er að breytast í Lady Gaga. Ég hata þetta ET-myndband." Og jafnvel einn aðdáandi Katy Perry viðurkennir að söngkonunni hafi orðið á mistök. „Ég elska Katy Perry meira en Gaga en þetta ET-myndband er of Gaga-legt." Ekki er víst að Lady Gaga geri neitt mál úr þessu enda er ferill hennar kominn upp í hæstu hæðir. Útspil Katy Perry er hins vegar ögn skiljanlegra, henni hefur gengið illa að viðhalda sínu orðspori í poppheiminum.
Mest lesið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Wire-stjarna látin langt fyrir aldur fram Bíó og sjónvarp Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Fleiri fréttir Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Sjá meira