Öskumyndband fær athygli 20. mars 2011 13:00
Tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Vigra hefur vakið athygli erlendis. Það var tekið upp við rætur Eyjafjallajökuls síðasta sumar. Tónlistarmyndband íslensku hljómsveitarinnar Vigra við lagið Sleep hefur hlotið þó nokkra athygli að undanförnu en það var tekið upp við rætur Eyjafjallajökuls þegar öskufokið þaðan stóð sem hæst síðasta sumar. „Við vorum búnir að heyra að það væri mikið í gangi undir Eyjafjöllum með öskuna og ákváðum að taka sénsinn," segir Bjarki Pjetursson, liðsmaður Vigra. „Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í en það skilaði sér." Myndbandið, sem Ragnar Snorrason leikstýrði, hefur verið tilnefnt til verðlauna á sjálfstæðu evrópsku kvikmyndahátíðinni ÉCU sem fer fram í París 1.-3. apríl. Það hefur áður verið sýnt á íslensku kvikmyndahátíðinni Northern Wave og var tilnefnt til verðlauna á Tónlistarmyndbandahátíð Los Angeles sem var haldin í janúar.sleep Atriði úr myndbandinu við lagið Sleep sem var tekið upp í fyrra.Myndbandið er byggt á Biblíusögunni um Abraham þar sem Guð bað hann um að fórna því dýrmætasta sem hann átti. Valdimar Örn Flygenring og Tómas Halldórsson léku feðga í myndbandinu. „Við hlupum með þá inn í bíl á milli taka. Þetta var mjög skrýtið allt saman," segir Bjarki og á þar við öskufallið á tökustaðnum. Hljómsveitin Vigri er nefnd eftir togaranum þar sem afi Ragnars, og Hans bróður hans sem er einnig í hljómsveitinni, var skipstjóri. Hún leggur nú lokahönd á sína fyrstu plötu, Pink Boats, sem er væntanleg í vor. Hún var tekin upp í litlum kirkjum úti á landi, þar á meðal í Flateyjarkirkju. „Það er mikil stemning í þessum litlu kirkjum og við vorum að reyna að ná henni inn í upptökurnar," segir Bjarki. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira