Hitti heimsfrægan kynskipting í New York 13. mars 2011 10:00 Ísak hitti Amöndu Lepore á klúbbi í New York og segir hana ótrúlega eðlilega og fína. „
New York var alveg æðisleg." segir förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason, en Fréttablaðið sagði frá því fyrir áramót að Ísak hefði í hyggju að flytja af landi brott og reyna fyrir sér í tískubransanum erlendis. Ísak og vinur hans, Þorsteinn Blær Jóhannsson, héldu því til New York í janúar í von um að fá einhverja vinnu þar ytra. „Við náðum frekar lítið að vinna þarna úti, enda er borgin ótrúlega hröð og endalaus „aksjón" í gangi. Ég var samt í sambandi við fullt af fólki og safnaði netföngum og tengiliðum," segir Ísak. Þeir félagar skelltu sér út á lífið á meðan á dvölinni stóð og rákust þá á hinn heimsfræga kynskipting Amöndu Lepore. „Amanda var alveg ótrúlega eðlileg. Hún kom og talaði við mig og ég pældi ekkert í því hvað hún væri strekkt í framan, hún virkaði bara ótrúlega jarðbundin og fín," segir Ísak. Ferðinni var fljótlega heitið heim á leið, enda nóg af verkefnum fyrir Ísak hér á landi. „Það er búið að vera mikið að gera síðan ég kom heim, alls konar verkefni og svona. Ég ákvað því bara að bíða aðeins með flutninga og fara bara út þegar ég er búinn með mitt hér heima," segir Ísak, en hann er núna á kafi í undirbúningi fyrir Reykjavík Fashion Festival. Ísak sá einnig um að hanna förðunina fyrir dansverkið Sinnum þrír sem Íslenski dansflokkurinn setur upp í Borgarleikhúsinu nú í mars. Þrátt fyrir að hafa fílað New York í tætlur ætlar Ísak ekki að flytja þangað en er staðráðinn í að finna sig í annarri stórborg. „Ég fíla mig miklu betur í Evrópu, í borg eins og London, og vonast til að flytja þangað í júní eða einhvern tímann yfir hásumarið." kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira