Geimverur ráðast á jörðina 10. mars 2011 09:00
Battle: Los Angeles verður frumsýnd hérlendis á morgun og á hún vafalítið eftir að njóta sín vel á hvíta tjaldinu enda uppfull af sprengingum og tæknibrellum eins og algengt er með myndir í þessum dúr. Söguþráðurinn er á þann veg að í fjöldamörg ár hafa staðfest atvik varðandi fljúgandi furðuhluti átt sér stað víða um heim; í Buenos Aires, Seoul, Frakklandi, Þýskalandi og Kína. En árið 2011 breytast þessi einstöku sakleysislegu atvik í skelfilegan veruleika þegar jörðin sætir árás frá óþekktum öflum. Á meðan fólk um allan heim fylgist með helstu borgum jarðar falla hverri á fætur annarri, er einn staður eftir þar sem lokabardagi mannkynsins fer fram, í orrustu sem enginn bjóst við. Það veltur á Nantz (Aaron Eckhart) og sveitinni hans að draga línuna og berjast við óvin sem á sér engin fordæmi. Auk Eckharts eru í helstu hlutverkum þau Michelle Rodriguez, Michael Peña, Nzinga Blake og Ne-Yo. Leikstjóri er Jonathan Liebesman sem á að baki hryllingsmyndirnar The Texas Chainsaw Massacre: The Beginning og Darkness Falls. Hann ætti því að eiga auðvelt með að halda bíógestum á sætisbrúninni í Battle: Los Angeles. Myndatakan er í heimildarmyndarstíl og með því vildi Liebesman líkja eftir myndum á borð við Black Hawk Down og United 93 þar sem heppnaðist vel að auka raunsæisgildið með hreyfanlegri myndatökunni. Battle: Los Angeles fylgir í fótspor geimverumynda undanfarinna ára þar sem mannkynið er í bráðri hættu og menn þurfa að hafa sig alla við til að verða ekki undir. Dæmi um þetta eru Independence Day og War of the Worlds sem báðar gengu gríðarlega vel, enda virðast geimverur og árásir þeirra á mannkyn alltaf jafn áhugaverðar fyrir bíógesti. Þess má geta að tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson samdi tónlistina við stiklurnar úr myndinni. Miðað við hversu áhrifaríkar þær eru og passa vel við viðfangsefnið eiga verkefni Jóhanns í Hollywood vafalítið eftir að verða mörg á næstu árum.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira