Blúshátíð í áttunda sinn 7. mars 2011 11:00 Blúsarinn hæfileikaríki er líflegur á sviði og nær góðum tengslum við áhorfendur.
Blúshátíð í Reykjavík verður haldin í áttunda sinn dagana 16. til 21. apríl. Þrennir stórir tónleikar verða haldnir á Hilton-hótelinu. Áttunda Blúshátíðin í Reykjavík verður haldin 16. til 21. apríl. Setningarhátíðin verður í miðborginni laugardaginn 16. apríl þar sem blúsinn verður í fyrirrúmi. Blúslistamaður ársins verður heiðraður, blúsvagnar Krúserklúbbsins keyra um bæinn, framinn verður blúsgjörningur og um kvöldið verða tónleikar. „Þetta verður alveg frábært, ég er í engum vafa um það,“ segir skipuleggjandinn Halldór Bragason. Um 3.500 manns sóttu hátíðina í fyrra og vonast hann eftir enn fleiri áhorfendum í ár. Yfir eitt hundrað útlendingar hafa þegar boðað komu sína, þar á meðal frá Noregi og Hollandi. „Við verðum með áherslu á Memphis og Mississippi þetta árið,“ segir Halldór og er afar ánægður með blúsarana sem taka þátt. Þrennir stórir tónleikar verða á Hilton-hótelinu frá fimmtudegi til laugardags. Fyrst stígur á svið Björgvin Halldórsson ásamt Páli Rósinkranz og Blúsmafíunni. Hljómsveitin Ferlegheit kemur einnig fram en hún gaf nýlega út sína fyrstu plötu, „You Can Be as Bad as You Can Be Good“, sem fengið hefur góða dóma. Marquis Knox, sem spilar kvöldið eftir, hefur verið kallaður krónprinsinn frá Missisippi, enda talinn einn efnilegasti blústónlistamaður sem upp hefur komið í Bandaríkjunum í langan tíma. Knox fæddist árið 1991 en þrátt fyrir ungan aldur er hann margverðlaunaður tónlistarmaður sem spilar blús af mikilli innlifun og næmni. Þetta sama kvöld spilar hljómsveitin Klassart, sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Hinn hæfileikaríki Vasti Jackson stígur á svið 21. apríl. Hann gjörþekkir rætur blústónlistarinnar, er líflegur á sviði og nær góðum tengslum við áhorfendur. Vasti Jackson er flinkur gítarleikari og afburða blússöngvari sem veit hvað áhorfendur vilja. Stone Stones, ein efnilegasta blússveit landsins, kemur einnig fram þetta kvöld. Klúbbur Blúshátíðar verður starfræktur á Hilton-hótelinu að loknum stóru tónleikunum. Þar verður leikinn blús af öllum gerðum þar sem ungliðar og reynsluboltar mætast á sviðinu í fjölbreyttri dagskrá. Miðasala á hátíðina hefst á Midi.is 10. mars. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Lífið Fleiri fréttir Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Sjá meira