Lífið

Rafmagnslaus tónleikaröð

Jana María Guðmundsdóttir skipuleggur tónleikaröðina Ragmagnslaust á Norðurpólnum.
Jana María Guðmundsdóttir skipuleggur tónleikaröðina Ragmagnslaust á Norðurpólnum.
Tónleikaröðin Rafmagnslaust á Norðurpólnum hefur göngu sína á fimmtudagskvöld í hinu nýlega leikhúsi á Seltjarnarnesi. Þar koma fram Agent Fresco og Orphic Oxtra og spila eigið efni órafmagnað og flytja einnig sameiginlegt verk.

„Það er ekkert alltof mikið af svona tónleikum í boði. Það er líka óvenjulegt að bjóða upp á tvær ólíkar hljómsveitir sem maður myndi ekki venjulega stilla saman,“ segir Jana María Guðmundsdóttir, leik- og söngkona, sem skipuleggur tónleikaröðina.

Markmiðið með uppsetningunni er að setja fram nýstárlegt tónleikaform og skapa nánd við áhorfendur. Gegn framvísun aðgöngumiða verður hægt að nálgast tvö lög frá tónleikunum á stafrænu formi á Gogoyoko.com. „Okkur langaði að gefa gestum eitthvað aðeins meira en upplifunina,“ segir Jana María.

Á meðal annarra hljómsveita sem hafa staðfest þátttöku sína eru Valdimar, Mugison, Samúel Jón Samúelsson og Stórsveit Reykjavíkur og Of Monsters and Men. „Það hafa allir rosalegan áhuga á þessu og það vilja allir taka þátt. Þetta er engin gróðamaskína heldur tilraun til að búa til viðburð sem verður aðeins öðruvísi og verður í sífelldri mótun,“ segir hún.

Tónleikarnir á fimmtudaginn hefjast stundvíslega klukkan 21 og miðaverð er 1.500 krónur. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.