Fólksflótti mun valda skorti á vinnandi fólki 4. júlí 2011 06:00 Tímamót Ramunas Bogdanas kom hingað til lands fyrir rúmum 20 árum til að leita eftir stuðningi Íslendinga við sjálfstæði Litháen. fréttablaðið/hag „
Íslendingar eru dáðir í Litháen,“ segir Ramunas Bogdanas sem var nánasti aðstoðarmaður Landsbergis, fyrsta forseta Litháens, eftir að lýst var yfir sjálfstæði þar í landi árið 1990. Eystrasaltslöndin þrjú halda upp á tuttugu ára viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á sjálfstæði þeirra á þessu ári, en Eistland og Lettland fengu sjálfstæði árið 1991. Ísland var fyrsta landið sem viðurkenndi sjálfstæði Eystrasaltslandanna. Bogdanas var fyrsti Litháinn sem kom til Íslands til að leita eftir stuðningi við sjálfstæðisbaráttu Litháa árið 1990. „Margir Litháar segjast hafa búist við öðruvísi Litháen eftir sjálfstæðið,“ segir Bogdanas en bætir við að séu þeir inntir eftir hverju þeir bjuggust við verði oft fátt um svör. „Kannski var það paradís.“ Litháar hafa að sögn Bogdanas fundið fyrir kreppunni á undanförnum árum. „Bankarnir voru útlánaglaðir. Peningar flæddu inn í landið, aðallega frá Skandinavíu,“ segir Bogdanas en á sama tíma hækkaði fasteignaverð mikið. „Jafnvel þótt fólk selji fasteign sína dugir það ekki fyrir skuldunum. Bólan sprakk og við lentum harkalega.“ Bogdanas segir að stærsta vandamálið sem Litháen glími við í dag sé mikill flutningur fólks úr landi. „Þegar við fengum sjálfstæði bjuggu 3,8 milljónir í landinu en í dag erum við 3,2 milljónir. Það er unga fólkið sem fer, vinnuaflið.“ Að sögn Bogdanas er kreppan í Litháen nú að mestu liðin hjá og er hagvöxtur landsins með því mesta sem mælist í Evrópusambandinu eða 7,5 prósent. „Það þýðir samt að fljótlega mun okkur skorta vinnuafl,“ upplýsir Bogdanas en flestir flytjast til Englands og Írlands. Auðveldara varð fyrir Litháa að flytjast úr landi eftir inngöngu í Evrópusambandið árið 2004, vegna frjáls flæðis vinnuafls. „Það stuðlar samt að ójafnvægi Evrópulanda vegna þess að launin eru lægri í Austur-Evrópu heldur en í vesturhluta álfunnar.“ Aðspurður segir Bogdanas þó að áhrif Evrópusambandsins séu mjög jákvæð. „Við fáum stuðning á ýmsum sviðum, eins og í landbúnaði. Við getum ekki hindrað fólk í að flytja úr landi en það eru til lausnir á því vandamáli. Nú er farið að ræða um að þau lönd sem taka við vinnuafli úr fátækari löndum bæti þeim tjónið sem þau verða fyrir vegna þess að menntað fólk flytur úr landi.“ martaf@frettabladid.is
Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Fleiri fréttir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Sjá meira