Besta úr báðum heimum 18. júlí 2011 08:00 Ástralarnir í Cut Copy spila á Nasa á miðvikudaginn og lofa mikilli stemningu.
Ástralska hljómsveitin Cut Copy heldur tónleika á Nasa á miðvikudag. Forsprakkinn Dan Whitford er mjög spenntur fyrir komunni til Íslands og lofar miklu stuði á dansgólfinu. Hljómsveitin Cut Copy frá Ástralíu spilar á Nasa á miðvikudaginn. Hún þykir frábær tónleikasveit og hefur komið fram á flestum helstu tónlistarhátíðum heims í sumar. „Enginn okkar hefur komið til Íslands áður. Þetta verður frábært. Það segja allir að þetta sé fallegt land og við erum mjög spenntir að kíkja í heimsókn,“ segir forsprakkinn Dan Whitford. Cut Copy spilar dansskotna popptónlist undir sterkum áhrifum frá tónlist níunda áratugarins. Sveitin hefur verið borin saman við jafn ólíka flytjendur og Kraftwerk, Roxy Music, Hot Chip og Franz Ferdinand. Sú síðastnefnda er einmitt meðal þeirra sveita sem hafa fengið Cut Copy til liðs við sig á tónleikaferðum sínum. Aðrar þekktar sveitir sem hafa túrað með Cut Copy eru Bloc Party og Daft Punk. Hljómsveitin hefur verið dugleg að spila víðs vegar um heiminn á þessu ári til að fylgja eftir sinni þriðju plötu, Zonoscope, sem hefur fengið fínar viðtökur. „Við ljúkum ekki tónleikaferðinni fyrr en seint á árinu. Þá getum við farið heim og slappað af með vinum okkar og fjölskyldum. Annars er þetta mjög öfgakennt líferni. Annaðhvort erum við alltaf heima og lokaðir inni í hljóðveri, eða þá að við erum á ferðalagi í margar vikur eða mánuði í senn,“ segir Whitford. Tíu ár eru liðin síðan Whitford byrjaði að prófa sig áfram undir nafninu Cut Copy en það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar sem hann fékk til liðs við sig fleiri meðlimi og hin eiginlega hljómsveit varð til. „Ég var í háskólanámi og þetta byrjaði sem hálfgert tómstundagaman heima hjá mér. Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur.“ Whitford lofar miklu stuði á tónleikunum á Nasa. „Mér finnst við vera heppnir að mörgu leyti. Við spilum danstónlist en lögin eru líka margslungin. Stundum finnst mér við bjóða upp á það besta úr báðum heimum. Fólkið getur sungið með lögunum okkar en það dansar líka og tekur fullan þátt í þeirri orku sem myndast á dansgólfinu,“ segir hann. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta Sjá meira