Fjárdráttur í nær 40 tilvikum 17. nóvember 2011 11:00 Tveir menn voru í gær ákærðir í Kvíabryggjumálinu.
Fyrrverandi forstöðumaður fangelsisins á Kvíabryggju, Geirmundur Vilhjálmsson, var í gær ákærður af ríkissaksóknara fyrir Héraðsdómi Vesturlands fyrir fjárdrátt í opinberu starfi með því að hafa á árunum 2008 til 2010 misnotað stöðu sína og dregið sér í 39 tilvikum fjármuni í eigu íslenska ríkisins. Jafnframt er honum gefið að sök að hafa reynt að leyna verknaði sínum með því að setja í bókhald fangelsisins níu tilhæfulausa reikninga útgefna af öðrum manni sem rekur smíðaverkstæði. Umræddur maður játaði brot sitt og verður mál hans klofið frá málinu og dæmt sérstaklega, þar sem um játningarmál er að ræða. Geirmundur óskaði hins vegar eftir fresti til að taka afstöðu til ákærunnar. Í ákærunni eru talin upp tæki og tól sem forstöðumaðurinn fyrrverandi er ákærður fyrir að hafa keypt á kostnað Kvíabryggju. Að miklum hluta er um að ræða varahluti í bíla, en einnig heimilistæki og tæki til smíða. Þá er honum gefið að sök að hafa selt bíl í eigu fangelsisins og hirt andvirðið. Loks að hafa skilað inn ónýtum farsíma við starfslok en haldið eftir nær 60 þúsunda króna síma sem fangelsið átti. Gerð er krafa um að hann endurgreiði íslenska ríkinu tæpar tvær milljónir króna.- jss
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri sprauta sig með ólöglegu efni til að fá brúnni húðlit Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Sjá meira