Bergljót Arnalds fræðir um húsdýrin 19. nóvember 2011 10:00 Bergljót Arnalds var að gefa út nýja bók um íslensku húsdýrin og býður börnum á hestbak í dag í tilefni þess. Fréttablaðið/gva „
Mig langaði að gera bók sem fræðir börnin um íslensku húsdýrin og sýnir hversu mikilvæg þau eru fyrir samfélagið," segir Bergljót Arnalds, rithöfundur og söngkona, en barnabókin Íslensku húsdýrin og Trölli kom út í vikunni. Bókin fjallar um lítinn tröllastrák sem villist og þarf hjálp frá íslensku húsdýrunum til að finna leiðina heim. Lesendur fræðast um dýrin, fá að vita hvaða dýr er með tagl og hvaða dýr eru með skott, hver gefur ullina og hvaða dýr gefa okkur mjólkina. „Hvert dýr hefur sinn karakter og býður sagan upp á að foreldrarnir sýni leikræna tilburði við lesturinn," segir Bergljót hlæjandi en ýmsa leiki og spurningar er að finna aftast í bókinni. Jón Hámundur Marínósson sér um teikningarnar í bókinni. Þetta er níunda bók Bergljótar en hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir bækur sínar og tölvuleiki, eins og til dæmis Stafakarlana. Hugmyndina að þessari bók fékk Bergljót í vor þegar hundur hennar, Draco Silfurskuggi, 14 ára drapst. „Það er mikill söknuður að honum og mér fannst hann eiga skilið heila bók til minningar um sig." Bergljót kynnir bókina með sérstökum hætti á Barnabókamessu í Iðnó í dag en þar ætlar hún að bjóða börnum á hestbak klukkan 14 og lesa upp ásamt öðrum barnabókahöfundum landsins. - áp
Mest lesið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Lífið samstarf Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið South Park verður South America Lífið Fleiri fréttir Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Sjá meira