Birgitta æfir fótbolta í Barcelona 19. nóvember 2011 12:00 Birgitta Haukdal er alsæl í Barcelona þar sem hún æfir meðal annars fótbolta með skólaliði í borginni. Hún er að gefa út sólóplötu sem er væntanleg í plötuverslanir á næstunni. fréttablaðið/anton „
Ég æfði fótbolta sem barn en hef ekki sparkað í bolta í fimmtán ár. En það er þarna kvennalið í skólanum og ég ákvað bara að reima á mig takkaskóna og mæta. Þarna ræður leikgleðin ríkjum og þótt ég sé ekki með þeim bestu er ég ekki með þeim verstu. Og það ræður kannski mestu um það að ég mæti alltaf,“ segir söngkonan Birgitta Haukdal, sem æfir fótbolta með skólaliði í Barcelona, en þar hafa hún og eiginmaður hennar, Benedikt Einarsson, komið sér fyrir ásamt syninum Víkingi Brynjari. Birgitta er hins vegar stödd hér á landi um þessar mundir til að kynna nýja sólóplötu sína sem er væntanleg í verslanir á næstu dögum. Hún verður gestadómari í sjónvarpsþættinum Dans, dans, dans í kvöld og hyggst þar syngja lag af plötunni sem hún vann í samstarfi með Þorvaldi Bjarna. Á plötunni er að finna lög eftir þau tvö en einnig lög eftir reynslubolta á borð við Egil Ólafsson og Þóri Úlfarsson. „Ég lét það svona ganga í tónlistarheiminum að ég væri að gera kraftballöðuplötu og væri að leita að lögum. Og viðbrögðin voru ótrúleg, ég fékk lög frá bæði þekktum og óþekktum tónlistarmönnum, frá fólki í underground-tónlistinni, klassík, þungarokki og allt þar á milli,“ segir Birgitta. Og söngkonan hefur komið sér vel fyrir í katalónsku höfuðborginni og sonurinn Víkingur unir sér vel í skóla þar sem hann lærir bæði ensku og spænsku þrátt fyrir ungan aldur. „Hann er í skólanum hálfan daginn,“ segir Birgitta sem er sjálf ekki alveg komin jafnlangt í spænskukunnáttunni og hún hefði viljað, en þar hefur spilað mikið inn í vinnan við nýju plötuna. „Ég hef bara sjálf verið að læra heima en þetta kemur allt saman núna þegar vinnan við plötuna er frá.“- fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira