Íslendingar alþjóðlegir í klæðaburði 19. nóvember 2011 06:00 Root Rodriguez, verkefnastjóri Lindex, þurfti að klæða þessar gínur í ný föt fjórum sinnum á opnunardegi Lindex á Íslandi. Hann hefur séð um opnanir á yfir 150 búðum víðs vegar um heiminn en aldrei upplifað annað eins. fréttablaðið/Vilhelm
Það er ekki hægt að segja annað en að Íslendingar hafi tekið sænsku verslanakeðjunni Lindex opnum örmum um síðustu helgi. Rooy Rodriguez hefur ferðast út um allan heim til að opna Lindex-búðir en hann hefur aldrei upplifað annað eins. „Ég bjóst við að mesti spenningurinn væri búinn á mánudaginn og þá yrði svona venjuleg mánudagsumferð. En nei, nei, eftirvæntingin var ekki minni þennan daginn. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta séu búnir að vera spennandi dagar í Lindex," segir Rooy Rodriguez verkefnisstjóri brosandi en hann kom alla leið frá Noregi til að aðstoða við opnun Lindex á Íslandi. Eins og frægt er orðið þurfti verslunin að loka vegna vöruskorts á þriðjudaginn og var komið á loftbrú milli Svíþjóðar og Íslands til að koma vörum til landsins. Nú er búðin og lagerinn að fyllast á nýjan leik og verslunin opnar aftur fyrir viðskiptavini í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem Lindex hefur opnað sömu verslun tvisvar sinnum á einni viku. Rodriguez hefur séð um 150 opnanir fyrir Lindex úti um allan heim en hann hefur unnið hjá fyrirtækinu í rúmlega sex ár. Þetta er í fyrsta sinn sem hann upplifir að viðskiptavinir tæmi búðina og lagerinn á aðeins þremur dögum eins og gerðist um liðna helgi. Hann ætlaði að fara heim síðastliðinn sunnudag en þurfti að lengja dvölina um viku og segir að allt fyrirtækið hafi næstum verið sett á annan endann til að koma vörum til Íslands. „Ég hugsaði bara: Hvaðan kemur allt þetta fólk? Erum við ekki á Íslandi?" Ég vissi að það lá mikil eftirvænting í loftinu hjá Íslendingum en ég bjóst sko aldrei við þessu. Ég var hlaupandi út um alla búð um helgina og reyndi að sjá til þess að fullt væri á öllum fataslám. Ég var meira að segja farinn að rífa gínurnar úr fötunum fyrir viðskiptavini en það gerist sjaldan. Það kom mér á óvart hvað Íslendingar voru kurteisir, þolinmóðir og stóðu prúðir í röð. Allt öðruvísi en skandínavíski kúnninn," segir Rooy og bætir við að hann sé hrifinn af tískunni hér á landi. „Þið eruð alþjóðleg í klæðaburði miðað við hversu fámenn þið eruð og kunnið að klæða ykkur. Hver og einn hefur sinn fatastíl og það er gaman að sjá." Rodriguez er búsettur í Noregi og það kom honum á óvart hversu há verðlagning er á fatnaði hér. Miðað við það segist hann skilja það vel að Íslendingar fagni komu Lindex og hinu lága vöruverði. alfrun@frettabladid.isFylla á Starfsmenn Lindex unnu hörðum höndum við að koma nýjum vörum upp en komið var á loftbrú milli Svíþjóðar og Íslands til að koma til móts við kaupþyrsta Íslendinga.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira