Hætt að selja stolinn Hugleiksbol 12. júní 2011 09:00 Óprúttinn notandi vefsíðunnar Mysoti.com tók mynd Hugleiks Dagssonar ófrjálsri hendi og hugðist selja á bol í vefverslun síðunnar.
F43100611 hugleikur „Ég man ekki eftir að hafa rekist áður á að einhver sé að taka myndirnar mínar í leyfisleysi og setja á boli,“ segir listamaðurinn Hugleikur Dagsson. Vefsíðan Mysoti.com býður notendum sínum upp á að prenta myndir á boli og selja í vefverslun sinni. Óprúttinn notandi vefsíðunnar var með bol til sölu merktan mynd Hugleiks Dagssonar úr bókinni Popular Hits og rukkaði tæpa 22 dali fyrir stykkið — um 2.500 íslenskar krónur. „Það fer aldrei í taugarnar á mér ef einhver einn og einn er að gera þetta fyrir sig,“ segir Hugleikur. „Það sem er leiðinlegt við þetta er að við vorum að fara að prenta akkúrat þessa mynd á bol, þannig að það er pirrandi að einhver úti í útlöndum hafi verið fyrri til. En það er fyrir öllu að þessi muni ekki græða meira á bolnum sínum en við græðum á okkar.“ Fréttablaðið hafði samband við Steve Hunt, eiganda Mysoti.com, sem var miður sín yfir málinu og hefur tekið bolinn úr sölu. „Ég tek höfundarrétt mjög alvarlega og hyggst taka alla boli þessa tiltekna notanda úr sölu, enda hefur hann notað mikið af höfundarréttarvörðum myndum frá fólki og fyrirtækjum.“ Hunt sagði enn fremur að ef notandinn sem stal mynd Hugleiks hefði hagnast á þeim tiltekna bol yrðu gerðar ráðstafanir til að borga Hugleiki fyrir ómakið. Hann tók þó fram að svo virtist sem enginn bolur með myndinni hefði selst.- afb
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Fleiri fréttir „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Sjá meira