Jólin komu snemma í ár með sigri KR 16. ágúst 2011 12:00 Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu, er sáttur við laugardagskvöldið þegar KR-ingar fylltu staðinn í sigurvímu. Hann segir kvöldið þó bara vera upphitun fyrir 1. október. Fréttablaðið/GVA „
Við vorum að grínast með að salan þetta eina kvöld hefði verið meiri en allan júlímánuð,“ segir Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Veitingastaðurinn er heimavöllur stuðningsmanna KR sem stigu trylltan sigurdans á laugardagskvöldið þegar félagið tryggði sér bikarmeistaratitilinn eftir sigur á Þór frá Akureyri. Hafsteinn segist ekki hafa nákvæma tölu á því hversu margir hafi skemmt sér á veitingastaðnum og torginu fyrir framan en giskar á þúsund manns. KR-ingar máttu þola háðulega útreið í úrslitaleiknum í fyrra þegar liðið steinlá fyrir FH en mikill meðbyr hefur verið í svart/hvítu-seglin á þessu ári. Liðið hefur ekki tapað leik á tímabilinu og KR-ingar eygja margir hverjir þá von að félaginu takist að landa Íslandsmeistaratitlinum 1. október þegar það mætir erkifjendunum í Val. Hafsteinn er engin undantekning þar á. „Ég sagði mönnum að veislan á laugardaginn væri bara upphitun, aðalveislan yrði í október.“ Veitingamaðurinn átti jafnframt ekki orð yfir liðið sjálft sem hann segir að rækti samband sitt við stuðningsmenn liðsins á einstakan hátt. „Þeir komu upp á svið á laugardagskvöldið, sungu með fólkinu sínu og voru algjörlega til fyrirmyndar.“ - fgg
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira