Einstök stund fyrir okkur 16. ágúst 2011 07:00
Ólafur Björn Loftsson tryggði sér keppnisrétt á Wyndham-meistaramótinu í golfi um helgina. Foreldrar hans eru sömuleiðis miklir golfarar og íhuga að fljúga út til að styðja við bakið á stráknum. „Þetta var bara eins og draumur,“ segir Kristín Björnsdóttir, móðir Ólafs Björns Loftssonar, kylfings úr Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi. Ólafur tryggði sér sæti á Wyndham-meistaramótinu í Norður-Karólínu um helgina, en það er hluti af bandarísku mótaröðinni, PGA. Hún er sú sterkasta í heimi en meðal þeirra sem hafa skráð sig til leiks eru Justin Leonard, Jim Furyk, Ernie Els og Vijay Singh, allt kylfingar í fremstu röð. Skjár golf verður með beina útsendingu frá mótinu alla dagana. Ólafur á ekki langt að sækja hæfileikana í golfi því faðir hans, Loftur Ólafsson, varð Íslandsmeistari í greininni árið 1972 á Grafarholtsvelli í Reykjavík. Loftur og Kristín sátu bæði límd við tölvuna á heimili sínu í Garðabæ á sunnudagskvöldið og náðu sér í beina útvarpslýsingu frá síðustu fjórum holunum á vefsíðunni golfstats.com. „Þetta var öðruvísi en maður hefur átt að venjast en var bara gríðarlega gaman og maður lifði sig vel inn í lýsinguna,“ segir Loftur sem viðurkennir að hafa smitað soninn af golfbakteríunni. Hann hafi hins vegar náð þessum árangri upp á eigin spýtur. Ólafur sagði í samtali við fjölmiðla á sunnudag að hann hefði aldrei púttað jafnvel og Loftur upplýsir að þau hafi verið til vandræða hjá honum. Um helgina small hins vegar allt saman og Ólafur sannaði það sem pabbinn vissi alltaf, að hann væri hörkugóður kylfingur. Kristín er engin eftirbátur karlanna í golfinu og segist reyndar vera sú sem dregur karlinn út á golfvöll um þessar mundir. „Ég fiktaði aðeins við golfið þegar ég var yngri og var að kynnast Lofti. En svo þegar maður var kominn með börn og vann fulla vinnu þá gafst ekki mikill tími til að stunda íþróttina. Þegar Ólafur byrjaði hins vegar að æfa og fara í keppnisferðalög þá fór mamman náttúrulega alltaf með og þá kom þetta eiginlega bara af sjálfu sér,“ segir Kristín. Kristín og Loftur viðurkenna að þau séu að skoða þann möguleika að fara út til Bandaríkjanna til að styðja við bakið á stráknum. „Það er enda ekki á hverjum degi sem svona tækifæri gefast og það væri gríðarlega gaman.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Fleiri fréttir Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Sjá meira