Læti á lokasprettinum í Reykjavík Runway 16. ágúst 2011 13:00 Allt á fullu fyrir lokakvöld Reykjavík Runway, að sögn Ingibjargar Grétu Gísladóttur, framkvæmdastjóra keppninnar. Fréttablaðið/vilhelm „
Hér er allt á fullu og mikill hamagangur að ganga frá síðustu smáatriðum fyrir úrslitin,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri keppninnar Reykjavik Runway, en úrslitakvöldið er á fimmtudaginn. Reykjavík Runway er fyrirtæki sem vinnur að því að koma íslenskum fatahönnuðum á markað hér heima sem erlendis. Í sumar fór fyrirtækið af stað með fatahönnunarkeppni þar sem fjögur íslensk merki, Ziska, Rosa – Bryndís, EYGLÓ og Shadow Creatures, keppa um að eiga bestu sumarlínuna 2012. Úrslitakvöldið verður haldið í Hafnarhúsinu þar sem ofangreindir hönnuðir sýna afrakstur vinnu sinnar í sumar og dómnefnd frá Fatahönnunarfélagi Íslands velur sigurvegarann. Verðlaunin eru meðal annars hálf milljón í peningum og að feta í fótspor Karls Lagerfeld og Manolo Blahnik með því að hanna útlit á Coke Light flösku. „Ég fór um helgina og heimsótti stúlkurnar, tók stöðuna og faðmaði þær allar. Núna er allt á suðupunkti og margt sem hefur verið að koma upp á síðustu daga,“ segir Ingibjörg en til dæmis sátu flíkurnar frá hönnunarteyminu Rosa – Bryndís fastar í tollinum á föstudaginn. „Það skapaðist smá stressástand því stúlkurnar voru búnar að skipuleggja myndatöku um helgina. Sem betur fer redduðu þær þessu á endanum.“ Harpa Einarsdóttir sem hannar undir merkinu Ziska og Eygló Lárusdóttir lentu líka í vandræðum með að fá efnin sín til landsins. „Harpa fékk efnin á föstudaginn og er búin að sitja sveitt við að sauma alla helgina. Eygló er hins vegar að vonast eftir að fá sín í dag,“ segir Ingibjörg og bætir við að allt starfsfólk Reykjavík Runway og keppendur séu reynslunni ríkari eftir sumarið. Það eru allir velkomnir á úrslitakvöldið, á meðan húsrúm leyfir, Keppnin hefst klukkan 20.20. - áp
Mest lesið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Fleiri fréttir Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Sjá meira