David Beckham hannar nærföt 29. júlí 2011 10:00 David Beckham er nýjasti samstarfsmaður Hennes&Mauritz og er því kominn í hóp með hönnuðum á borð við Madonnu, Jimmy Choo, Versace og Soniu Rykiel.
Nærfataauglýsing David Beckham hefur áður auglýst nærföt fyrir Armani og vöktu þessi skilti mikla athygli á sínum tíma. Spurning hvort Hennes-&Mauritz leggi í svona auglýsingaherferð? nordicphoto/afp David Beckham hefur sýnt það gegnum tíðina að honum er margt annað til lista lagt en að koma boltanum í netið. Engan grunaði þó að hann færi að hanna nærfatnað fyrir eina af stærstu verslanakeðjum heims, sænska risann Hennes&Mauritz. Um er að ræða nær-fatalínu fyrir karlmenn sem Beckham hefur verið að hanna og þróa undanfarið ár. „Ég er bjartsýnn á að nærfötin hitti í mark hjá karlmönnum. Sniðin og efnin eru úthugsuð og með því að fá samning við H&M getum við dreift fatnaðinum á heimsvísu,“ segir Beckham í yfirlýsingu frá verslanakeðjunni en samningurinn hljóðar upp á tvö ár. Frumsýning á línunni verður í febrúar á næsta ári og má gera ráð fyrir mikilli markaðsherferð, jafnvel með sjálfum hönnuðinum í aðalhlutverki. Ekki er langt síðan Beckham-hjónin voru fáklædd í nærfataauglýsingu fyrir Armani-tískuhúsið og vöktu gríðarlega athygli. Beckham hefur löngum verið eins konar tískufyrirmynd karlmanna og verið óhræddur við tilraunastarfsemi í fatavali. Með því að gerast hönnuður er Beckham að feta í fótspor eiginkonu sinnar, Victoriu, en hún hannar undir sínu eigin merki og hefur gengið mjög vel. Hver veit nema hún sláist í H&M hópinn innan skamms? - áp
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Sjá meira