Fékk steypuklump í afmælisgjöf 3. október 2011 06:30 „
Þetta er búin að vera hefð í mínum vinahópi að gera eitthvað svona. Ég átti von á ýmsu en kannski ekki akkúrat þessu," segir Páll Sveinsson, starfsmaður hugbúnaðarfyrirtækisins Hugvits. Hann fékk klifurdót í fimmtugsafmælisgjöf frá vinum sínum, sem er ekki í frásögur færandi nema það að gjöfin var föst innan í risastórum 2,5 tonna steypuklumpi. Vinirnir festu uppátækið á filmu og settu á síðuna Youtube. „Það óvenjulega við þessa gjöf er að hún er í rauninni pakki því hingað til hefur ekki tíðkast að gefa pakka heldur bara eitthvað sem ekkert gagn er að," segir Páll. Steypuklumpurinn var fluttur í krana heim til Páls. Hamar og meitill fylgdu með en á endanum fékk hann gröfu til að brjóta klumpinn upp og komast að gjöfinni. Það tók um tvær klukkustundir. „Hugmyndin var sú að ég yrði næsta hálfa árið að berja á þessu," segir Páll og hlær. Hann minnist fertugsafmælis síns þegar hann fékk ísskrúfur sem eru notaðar til klifurs en böggull fylgdi því skammrifi. „Þær kosta alveg þokkalega mikinn pening en þeir fóru með ísskrúfurnar til járnsmiðs og suðu þær saman í skúlptúr þannig að þær urðu alveg gagnslausar. Það var rosalega svekkjandi." Páll og vinahópur hans hefur gefið fleiri undarlegar „gjafir" í gegnum tíðina. Húsið hjá einum þeirra var málað bleikt, annar fékk sex tonna stein fluttan heim til sín með afmælisgrafskrift og sá þriðji, sem er mikill skíðamaður, hélt að hann hefði dottið í lukkupottinn þegar leigð var þyrla og flogið upp á Esjuna með skíði í farteskinu. Gleðin var skamvinn því hann var látinn labba niður á meðan vinir hans skíðuðu niður með bros á vör. - fb
Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Sjá meira