Huga að heildinni 26. júní 2011 00:01 Fréttablaðið/Pjetur
Við viljum fá til okkar sem flesta fótboltakrakka, bæði stráka og stelpur, á aldrinum 13 til 17 ára," segir Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu. Hún, ásamt einkaþjálfaranum Silju Úlfarsdóttur, byrjuðu með afreksskóla í Sporthúsinu þann 20. júní. „Mikill hugur er í krökkum í dag. Margir vilja ná langt og verða jafnvel atvinnumenn. Við viljum hjálpa þeim að ná sem lengst," segir hún. Margrét og Silja hafa unnið náið saman í vetur meðan Margrét hefur verið í fríi frá deildinni sinni vegna meiðsla. „Við náðum vel saman á æfingum og þá kviknaði hugmyndin um að kenna öðrum það sem við vitum," segir Silja og áréttar að það að vera íþróttamaður snúist um svo margt, ekki aðeins fótbolta. „Allt of oft kenna fótboltaþjálfarar bara knattspyrnu og ég fæ til mín fólk jafnvel úr meistaradeild sem kann ekki að gera armbeygjur og hnébeygjur rétt," segir Silja og segir skorta að hugað sé að heildinni í þjálfun. „Okkar markmið er að kenna krökkunum lyftingar, hlaup og um næringu og hugarfar fyrir utan auðvitað tækniæfingar," segir Silja. Þær stöllur telja enda nauðsynlegt að íþróttamenn læri að gera hlutina rétt nógu snemma til að lenda ekki í meiðslum síðar. Afreksskóli Margrétar og Silju verður byggður upp sem tveggja vikna námskeið þar sem hver þátttakandi fær fjórar æfingar. „Við verðum með fáa krakka í einu svo hver og einn fær rosalega góða athygli," segir Margrét Lára. Kennslan fer fram í Sporthúsinu í Kópavogi en frekari upplýsinga er að leita þar eða á Facebook undir afreksskóli Margrétar og Silju. solveig@frettabladid.is
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira