Á háum hælum við Kleifarvatn 4. október 2011 07:00 „
Þetta gekk ágætlega, svona miðað við veður," segir Sara Nassim, framleiðandi hjá Pegasus. Fyrirtækið var bresku stúlknasveitinni The Saturdays innan handar um helgina þegar þær tóku upp myndband við nýjasta smell sinn, My Heart Takes Over, hér á landi. Breskir fjölmiðlar fylgja hverju fótmáli stelpnanna og vefútgáfa Daily Mail birti myndir af þeim í Heathrow-flugstöðinni þar sem þær voru nýkomnar heim eftir heimsóknina til Íslands. Þar má meðal annars sjá eina af aðalstjörnum sveitarinnar, Frankie Sandford, með Epal-poka en við hlið hennar var kærastinn, Wayne Bridge, knattspyrnumaður hjá Manchester City. Að sögn Söru fóru tökur mestmegnis fram við Kleifarvatn og næsta umhverfi. „Þetta voru mjög erfiðar aðstæður, þær voru stílíseraðar fram á fingurgómana, klæddar í pils og háhælaða skó en stóðu sig eins og hetjur. Þær voru algjör hörkutól," segir Sara en The Saturdays gafst ekki mikill tími til að skoða sig um enda var unnið frá morgni til kvölds. „Þær höfðu engan tíma til að kíkja eitthvað út." The Saturdays er spáð miklum frama og í gær greindu breskir fjölmiðlar frá því að sveitin hefði samið við bandarísku sjónvarpsstöðina E! um gerð raunveruleikaþáttar og er talið að sá samningur eigi eftir að greiða götu sveitarinnar að Bandaríkjamarkaði sem hefur reynst mörgum torsóttur. - fgg
Mest lesið Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Áskorun Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Lífið Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Lífið Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Lífið Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Lífið Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Lífið Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Lífið Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Lífið Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar Lífið Hlægileg sjálfsfróun og hryðjuverk á Wuthering Heights Gagnrýni Fleiri fréttir Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Handtekinn fyrir að sýna typpið Sjá meira